Bankablaðið - 01.04.1936, Blaðsíða 15

Bankablaðið - 01.04.1936, Blaðsíða 15
BANKABLAÐÍÐ 15 Snarl. Kristján S. Kristjánsson, starfsmað- ur í Landsbanka íslands, hefir nýlega gefið út skáldsögu, er hann nefnir Sól- veig. Bókin er mjög lipurt skrifuð og með talsvert rómantiskum blæ. Margir starfsmenn hafa það, sem kallað er „hobby“, þ. e. verja tómstundum sín- um til að iðka íþróttir eða annað sér til dægrastyttingar. Það eru þó senni- lega fæstir, sem hafa það á valdi sínu að gerast rithöfundar, en þetta hefir Kristjáni tekizt. Hann hefir áður látið ýmislegt frá sér fara á prenti. Allt er það af vandvirkni gert, og vill sá, er þetta ritar, hvetja samstarfsmenn höf- undarins og aðra bankamenn til þess að kaupa þessa síðustu bók hans. a. Tveir starfsmenn tJtvegsbanka Is- lands h.f., þeir Halldór Halldórsson, Akureyri, og Þórarinn Nielsen, Reykja- vík, eru nýkomnir úr ferðalagi til Mið- jarðarhafslandanna. Ólafur Thorarensen, útibússtj. Lands- banka íslands, Akureyri, er staddur hér í bænum um þessar mundir. NámssjóSur starfsmanna Landsbanka íslands. Á fundi í F. S. L. I., hinn 29. apríl, fór fram kosning í stjórn sjóðs- ins. Þessi hlutu kosningu: Þorgils Ingvarsson, Þorsteinn Jónsson, Jóhanna Þórðardóttir, Haraldur Johannessen, F. A. Andersen. Pciskafríið. Samkvæmt áskorun frá nokkrum starfsmönnum Landsbanka Bezta rjólið og munntóbakið er frá Brödrene Braun A4 Kaupmannahöfn.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.