Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 16

Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 16
88 BANKABLAÐIÐ sem skotið er inn „frösum“, sem hver meðalmaður getur lært á tveim mín- útum en notað æfilangt. Og þannig er „tendensinn“ í þá átt. Sé það á hinn bóginn nauðsynlegt, að skrifa rækileg bréf, þá verður bankinn að styðjast við þá málagarpa, sem hann kann að hafa í þjónustu sinni, en það eru menn, sem hafa valið tungumál sem sérgrein og eru því mun færari til þess starfs, heldur en Kandidatar frá venjulegum bankaskóla. Ég vil ekki að menn skilji orð mín þannig, að ég sé mótfallinn allri tungu- málakennslu í bankaskóla, því víst er það ágætt að kenna mönnum undir- stöðuatriði í einu eða tveim aðaltungu- málum (ensku og þýzku), en hitt er fásinna, að gera þau að aðalnámsgrein. í fyrsta lagi tækju þau of mikinn tíma frá öðrum þýðingarmeiri námsgrein- um. I öðru lagi er það geysilega erfitt nám og seintekið að temja sér vald yfir erlendu tungumáli; og í þriðja lagi þá er málakunnátta nýliða í bönk- um hér svo mismunandi, að óvíst er á hvaða stigi málsins ætti að hefja kennsluna. Takmarkið er að gera nýliða bank- anna að góðum starfsmönnum — hvernig verður því náð? Ég hefi — og það höfum við sennilega öll, sem störfum í banka — oft velt fyrir mér þessari spurningu. Ég get ekki sagt hvað aðrir kunna að hugsa í þessu máli, aðeins get ég látið í ljósi þá skoð- un, sem ég sjálfur hefi myndað mér. Menn geta menntað sig á tvo vegu: bóklega og verklega. Hvort um sig getur verið ágætt, en bezt er þó þegar þessar leiðir liggja saman — í banka- fræðum er það uauðsynlegt. Þetta virðist ekki vera nein ný sannindi, ég ætla þó að leyfa mér að skýra dálítið nánar við hvað ég á. Gamla kenn- ingin hljóðar á þá leið, að enginn skóli jafnist á við starfið sjálft. Þetta er að sumu leyti rétt, en að mjög mörgu leyti alrangt. Það þarf að skapa mögu- leika til þess, að starfið gefi nokkra verulega menntun — það kemur ekki af sjálfu sér. Af hverju? Vegna þess, að oft er áhugi yfirboðara fyrir undir- mönnum svo daufur, að nýliðinn gleymist; hann staðnar í þroska sínum sitjandi við sama púltið og skrifandi sömu tölurnar. Er þetta þá nokkur menntun — víkkar sjóndeildarhring- urinn eða skílningurinn! Ónei. Á þenn- an hátt skapast sá praxis, að verka- sviðið verður örugg höfn miðlungs- mannsins, en hvetur ekki til framtaks. Aldur manna í starfinu ræður því, hve- nær leiðin liggur upp á við í tigninni, starfsorka, hæfileikar, kunnátta, hef- ir enginn þörf fyrir, mætir jafnvel fyr- irlitningu, því þegar þessir sjálf eða „verklega“ menntuðu menn með tím- anum — vegna þess að ekki þykir hægt að ganga framhjá þeim — fá æðri stöðu, þá slá þeir á brjóst sér og segja: sjáið þið mig, þetta hefi ég komist — og ekki hefi ég lesið nokkra bók. Það er starfið vinir mínir, starfið, sem hef- ir gert mann úr mér!! Ef við hugsum okkur bankana hér, þá verður því ekki neitað, að hætt er við, að nýliðinn fái þessa skaðlegu ör- yggiskennd og eins og setjist í helgan stein einmitt á því augnabliki, sem hann á að láta hendur standa fram úr ermum og leggja grundvöllinn undir framtíð sína. Á þessu yrði ráðin bót á einn veg, að gefa starfinu menntun- arskilyrði og það tekst með örari flutn- ingi nýliðanna milli deildanna. Það á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.