Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 32

Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 32
jueiðrétting. Á bls. 104 í 5. línu á eftir 1. nóv. s.l. 104 á að koma úr Fiskveiðasjóði Islands. BANKABLAÐlÐ Overjandi greiðvikni Á fundi 13. þ. m. ákvað fulltrúaráð Útvegsbankans að greiða hinum nýskip- aða bankastjóra Ásgeiri Ásgeirssyni til viðbótar bankastjóralaunum hans kr. 4.200,00 á ári, frá og með 1. nóv. s. 1. Samkvæmt lögum hefir ráðherra sá, sem fer með sjávarútvegsmál, þ. e. at- vinnumálaráðherra, á hendi yfirumsjón Fiskiveiðasjóðs íslands, en framkvæmd- arstjórn hans annast Útvegsbankinn. Reikningshald og fjárreiður sjóðsins er aðskilið fjárhag bankans. Er það því eitt af skyldustörfum bankastjóra Útvegsbankans að gegna framkvæmdarstjórastörfum sjóðsins jafnt og bankans, en aukaþóknun hafa þeir aldrei til þessa fengið greidda fyr- ir þau störf. Með ákvörðun þessari hefir engu ver- ið breytt um fyrirkomulag á fram- kvæmdarstjórn sjóðsins, þar sam hinir bankastjórarnir hafa ekki verið leystir frá störfum í þágu sjóðsins, og Ásgeiri Ásgeirssyni hefir heldur ekki verið fal- ið að hafa þau störf sérstaklega á hendi fyrir bankans hönd. Ekki er kunnugt, að Ásgeir Ásgeirs- son hafi, síðan hann tók við stöðu sinni sem bankastjóri, 4. nóv. s. 1., haft nein afskipti af stjórn sjóðsins, þótt ákveðið hafi verið, að greiða honum laun fyrir þau frá 1. nóv. s. 1. Fulltrúaráð bankans hefir með á- kvörðun þessari sýnt hinum nýja og með öllu óreynda bankastjóra óverjandi greiðvikni, og stingur svo fljót og greið afgreiðsla á launabótaerindi hins nýja bankastjóra mjög í stúf við undirtektir og afgreiðslu fulltrúaráðsins á erindum óbreyttra starfsmanna bankans og fé- lags þeirra. Er hér um fyrirskipun frá atvinnu- málaráðherra að ræða? Ef svo er, virðist fulltrúaráðið vera orðið viljalaust verkfæri í höndum ráð- herranna. En ef svo er ekki, þá skortir fulltrúaráðið ekki þor, vilja eða hug- kvæmni til úrræða, þá er vildarmenn þess eiga hlut að máli. Þessi meðferð á fé Fiskiveiðasjóðs mun mælast illa fyrir, enda er hún stór- hneyksli. N. S. Ungur maður bauð stúlku að kvöld- verði á dansleik nokkrum. Allan tím- ann meðan þau snæddu, horfði gest- gjafinn í sífellu á stúlkuna. Að loknum verði spurði maðurinn hverju sætti. Fyrirgefið herra, ég gat ekki að því gert að horfa með aðdá- un á stúlkuna. Þetta er í sjötta sinn í kvöld, sem hún kemur til okkar með ungum manni og borðar. Mamma, við Siggi höfum verið að leika póstmenn í dag. Við höfum látið alla, sem við hittum á götunni fá bréf. Móðirin: Hvar fenguð þið bréfin? Við fundum þau í skúffunni þinni, þau voru bundin saman með bláu silki- bandi. Móðirin fölnaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.