Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 33
BANKABLAÐIÐ
105
Tíu ára
starfsafmæli
— Eftirlaunasjóður starfsma'nna
Landsbanka Islands á tíu ára afmæli
1. janúar næstkomandi.
Reglugjörð sjóðsins hefir staðið ó-
breytt í tíu ár, enda þótt sjóðfélagar
hafi hvað eftir annað látið í ljósi, að
þteir séu óánægðir með hana og að
fulltrúi þeirra í sjóðstjórninni hafi við-
urkennt að reglugjörðin væri gölluð
og þyrfti að lagfærast. Annars virðist
þetta mál afgreiðast mjög seint yfir-
leitt, því t. d. þó það standi skírt í
reglugjorðinnj, a.B tryggingarfróður
maður skuli gera upp efnahagsreikn-
ing fyrir sjóðinn fimmta hvert ár og í
fyrsta skipti fyrir árslok 1933, þá var
þessi efnahagsreikningur ekki gerður
upp fyrr en árið 1935, og ekki virðist
stjórnin hafa kært sig um að koma
jafnvægi á þetta með því, að láta upp-
gjör fara fram í ár.
Það hlýtur að vera öllum banka-
starfsmönnum ljóst, að eitt þýðingar-
mesta atriði svona trygginga er aldur
mannsins, þegar hann byrjar að
greiða iðgjöld. Þetta verður að taka
betur til greina í reglugjörðinni. Það
er ekki sanngjarnt að þeir, sem koma
ungir í bankann greiði of há iðgjöld
til þess, að þeir, sem eldri eru, er þeir
koma, geti fengið betri kjör hjá
sjóðnum. Það er líka hægt að ætlast
til þess að þeir hafi áður verið búnir
að gera einhverjar ráðstafanir í þessa
átt.
Allur þbrri starfsmanna mun
byrja í bankanum 30 ára eða yngri og
það er áreiðanlega hægt að veita þess-
um mönnum kjör, sem þeir mega allir
vel við una. Þeir, sem byrja eldri fá
svo kjör miðuð við aldurinn, en hver
þau geta orðið, hefi ég enn ekki reikn-
að út.
Þess má geta í þessu sambandi, að
Brynjólfi Stefánssyni, forstjóra, reikn-
ast svo til í útreikningum þeim, sem
hann gerði í sambandi við efnahags-
uppgjörið 1935, að þau kjör, sem sjóð-
urinn veitir nú, kosti 25 ára mann
4,85% af launum hans árlega, og er
það rífleiga reiknað. Það hlýtur að
mega gera ráð fyrir því, að þeir sem
koma í bankann þrjátíu ára eða yngri,
séu að meðaltali ekki eldri en 25 ára,
er þeir koma og er bví auðséð að kjör
þeirra má bæta verulega.
Ég geri ráð fyrir því, að þetta mál
verði tekið fyrir á öðrum vettvangi
áður en langt um líður og mun ég þá
ræða það nánar, en láta þfetta nægja
hér.
G. G. B.
Morgun nokkurn kom Árni litli með
fagran blómvönd í skólann og af-
henti kennslukonunni. Hún horfði
undrandi á hann um stund. Árni sagði:
„Viljið þér ekki blómin?“
„Jú, vinur minn, en ég er svo for-
viða að fá þessar fallegu rósir frá þér,
Árni. Þú hefir aldrei komið með blóm
til mín áður“.
„Ég skal koma með meira af blóm-
um handa yður á morgun, ef að ekki
verður búið að jarða leigjandann
heima“, sagði Árni.