Bankablaðið - 01.12.1938, Page 45
BANKABLAÐIÐ
117
Bankaklukkan
í síðasta blaði var grein um klukku
þá í Landsbankanum, er sýnir komu-
tíma manna ,í bankann á morgnana. Ég
vil ekki láta grein þessari algerlega
ómótmælt, þareð höf. ásakar starfs-
fólk bankans .— í heild — um slæp-
ingshátt og iðjuleysi á morgnana. Það
má vel vera, að deild sú, er hann vinn-
ur í,hagi svo verkum, að lítið eða ekk-
ert sé að gera kl. 9—10 á morgnana og
að menn slæpist þar við blaðalestur,
skraf o. f 1., en höf. má ekki dæma all-
an bankann eftir því.
En fyrst minnst er á klukkuna, þá
verð ég að segja, að mér virðist hún
alveg óþörf í banka, þar sem menn
verða að ljúka verki sínu, — hvort
sem það er búið kl. 5, eða gengur fram
á nótt, — án aukagreiðslu. En, sem
arra þjóða dæmi oss að varnaði verða.
Sækjumst eigi eftir því, að blanda
geði við öfgar þeirra og ofstopa. Unum
glaðir við okkar. Hér er gnægð alls,
ef við kunnum að lifa og erum sam-
taka. — Eins og stjörnur no ðursins
eru skærar meðal stjarna, eins eru
Norðurlönd björt meðal landa. Hvar
í heimi er friður nú, ef hann er ekki
þar ? Og er ekki okkar land — ísland,
dásamlegast þeirra allra? — Það mun
börnum þess finnast flestum. Hamingj-
an gefi okkur þá að geyma þess vel, og
alls, er það hefir gefið, gefur og mun
gefa, meðan það er mönnum byggt.
Lifi landið okkar, ísland!
kunnugt er, greiðir Landsbankinn ekki
fyrir aukavinnu. Slíkar klukkur eru
ætlaðar fyrir verksmiðjur, er greiða
tímakaup. Það verður að ætlast til
þess, að deildarstjórar bankans geti
hver fyrir sína deild, séð um að fólkið
komi á réttum tíma, það er að segja,
þeir fáu, sem ekki gera það af sjálfs-
dáðum.
Eins og bankamenn vita, fer mikið
af vinnu bankanna fram fyrir kl. 10 á
morgnana, er opnað er, og eftir kl.
3, þegar lokað er. Ætti starfsmönnum
að vera það í sjálfsvald sett, hvort
þeir vinna fyrir kl. 10 á morgnana eða
á kvöldin, eftir kl. 5. — En klukkan
fyrirbyggir morgunvinnu, þareð hún
er ekki „opnuð“ fyrr en kl. 9, og, þeg-
ar maður er seztur við verk t. d. uppi
á öðru lofti, gleymir maður að fara
niður og stimpla, eða nennir því ekki.
— Þetta kostar það, að viðkomandi
hefir ekki komið þann dag, enda þótt
hann hafi komið fyrstur allra!
Á mína vinnu í bankanum hefir
þessi klukka engin önnur áhrif en þau,
að ég kem, stundum seinna, vegna þess
að hún er þar. Fyrir það fólk í bankan-
um, sem svo hagar til með, að það
verður að vinna fram eftir á kvöldin,
en þarf ekki að byrja fyrr en kl. 10
á morgnana, er klukku-stimplunin,
hreint og beint ranglæti.
Jeg vil leggja til, að rauða „brenni-
merkið“ sé fært til kl. 9% og vörður
látinn vera við klukkuna til kl. 10l/á
og að skrifstofustjóri spyrji daglega,
þá er koma of seint um ástæður fyrir
fjarveru. Annars er þessi klukka alveg
þýðingarlaus.
Þ.