Bankablaðið - 01.12.1938, Page 21
BANKABLAÐIÐ
93
Kristján Sig. Kristjánsson:
mann
þrönginni
Stóra klukkan í Landsbankanum
var á mínútunni ellefu. Það var að-
fangadagur jóla. Að einni klukku-
stundu liðinni var lokunartími bank-
ans kominn. Og allir vissu að betra
var að vera kominn inn úr dyrunum,
áður en lokað var. Viðskiptamennirn-
ir streymdu inn í stórum hópum, og
ösin var svo mikil, að þéttar raðir af
viðskiptavinum biðu eftir afgreiðslu.
Mest var þó ösin í Sparisjóðsdeildinni.
Flestir voru þögulir og hugsandi. —
Nokkrir voru þó, sem röbbuðu saman
um viðburði dagsins. Aðrir álösuðu
Valútunefndinni eða þráttuðu um
stjórnmál.
En starfsfólk bankans var önnum
kafið, og beitti starfsorku sinni af
fremst megni. Hvergi máttu vera mis-
grip, hvergi mistalning. Allt varð að
vera hárrétt. Þungur kliður af véla-
skrölti og öðrum hávaða fyllti salinn.
Víxlar, kvittanir, sparisjóðsbækur og
peningar ultu yfir viðskiptaborðið,
e'ins og sjógangur yfir öldustokk á
skipij sem er á siglingu í úfnum sjó.
Þeir, af viðskiptamönnunum, sem lok-
ið höfðu erindi sínu, hröðuðu sér frá
borðinu og stefndu til dyra. Aðrir
komu í þeirra stað.
En þegar viðskiptin stóðu sem hæst,
gekk hár maður og þrekinn inn gólf-
ið. Hann var klæddur loðfeldi og var
í öllu hinn snyrtimannlegasti. Maður
þessi hétt örn Hjálmarsson. Hann var
Vestur-Islendingur — nýkominn heim
— eftir átta ára veru vestanhafs. —
Hann svipaðist um í salnum og horfði
athugulum augum á fólkið, sem inni
var. Andlit hans var karlmannlegt og
festa í svipnum. Útlitið benti á þrjátíu
og fimm ára aldur. Hann valdi sér
sæti við lítið borð í sparisjóðsdeild-
inni. Þar lagði hann frá sér hatt sinn
og gullbúinn göngustaf. Að því loknu
tók hann sparisjóðsbók úr vasa sín-
um og svipaðist um á borðinu eftir
ritföngum. En við það kom hann auga
á miða, sem lá á borðinu. Miðinn dró
athygli hans að sér. Hann hafði ver-
ið fylltur út, eins og venjulega er gert,
en vegna stórrar blekklessu, sem fall-
ið hafði á hann, hafði hann ekki þótt
nothæfur. Eigandinn hafði svo í ógáti
skilið hann eftir á borðinu. örn starði
undrandi á míðann, eins og hann
tryði ekki sínum eigin augum. En það
var ekki um að villast. Dagsetning og
ártöl sýndu yfirstandandi dag. Úttek-
ið kr. 25,00. Eigandi bókarinnar: Álf-
heiður Álfsdóttir. Úttekið af henni
sjálfri.
Það vottaði fyrir undarlegum svip-
brigðum í andlitinu og ofurlitlum
glampa í augunum. Hann virti fyrir
sér nafnið. Gamlar minningar brutust
fram í huga hans. Stafirnir komu hon-
um fyrir sjónir eins og langþráðir vin-