Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 35

Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 35
BANKABLAÐIÐ 107 degi, og snæðum. Bæði á árbökkunum og eins út í ánni er talsvert af fólki, því að sumir synda, aðrir vaða, þar sem áin er svo grunn, að það er hægt, aðrir róa smábátum, og enn aðrir fleyta sér á litlum ,,kajökum“. Skömmu eftir hádegið erum við komnir til landamæranna, sem þá voru, eða til staðar þess sem heitir Herrnskretschen. Tollskoðun fer nú fram í skyndi, en lítið er hjá okkur að skoða, því að við erum svo að segja tómhentir. Fara nú allflestir hér af skipinu, því að til þess að mega fara lengra, þarf auðvitað vegabréf eða sérstakt leyfi, en þau hafa ekki allir. Vegabréf okkar eru nú stimpluð, og eftir nokkrar mínútur skríður hjóla- skipið af stað. Langt er nú ekki til ákvörðunarstaðarins, Bodenbach, enda komum við þangað laust eftir kl. 2. í Bodenbach, eða Podmokly, eins og bærinn hét áður á tékknesku, eru tæplega 23000 íbúar. Stendur hann allur öðrum megin árinnar Elbe, en beint á móti honum, hinum megin er bærinn Tetschen, sem er talsvert minni, eða hefir tæplega 13000 íbúa. Milli bæjanna liggja tvær stórar brýr yfir ána, svo að í fljótu bragði sýnist þetta vera einn og sami bærinn. Er við komum þarna, var verið að endur- byggja aðra brúna, og gengum við því yfir um, til þess að sjá mannvirkið. Enga frekari dvöl höfðum við í Tet- schen, en snérum við yfir til Boden- bach, til þess að leita að veitingastað, þar sem við gætum snætt miðdegisi verð og fengið tékkneskan bjór. — Gekk þetta nú allt að óskum, og fór- um við því næst út í borgina, er við vorum mettir orðnir. Enda þótt bær þessi tilheyrði þá Tékkóslóvakíu, var hann að flestu leyti hálf-þýzkur, eða jafnvel meir en það, enda er það eðlilegt þegar þess er gætt, að mestur hluti íbúanna í Bod- enbach og Tetschen eru Þjóðverjar og bæirnir skammt frá þáverandi landa- mærum Þýzkalands. Ýmsar áletranir, til dæmis hjá verzlunum, við af- greiðslu skipanna, á járnbrautarstöð- inni, voru bæði á tékknesku og þýzku, ef til dæmis auglýst var á staur, að bátur væri til sölu eða eitthvað því um líkt, þá var það á báðum þessum málum. Enda þótt myntin væri tékk- nesk króna, greiddum við mat okkar og drykk í matsöluhúsinu með þýzk- um mörkum. Minnir mig þó að verð- ið á matseðlinum væri tilgreint í tékkneskum krónum, en þjónninn var afar leikinn í því að reikna á milli. Árið 1911 voru í Bodenbach ekki nema rúmlega 12000 íbúar, svo að nú eru þeir nær tvöfalt fleiri en þá. Er þar nú talsverður iðnaður, meðal ann- ars er framleitt mikið af súkkulaði og rafmagnsáhöldum. Rétt við Bodenbach er f jall eitt hátt og bratt, sem heitir Scháferwand, (en það mun vera sama og „schieíe Wand“), liggja í gegnum það járn- brautargöng, sem við fórum um á leiðinni heim. Fjallið er úr bergteg- und, sem kölluð er ,,Elbsandstein“. Um kvöldið fórum við að hugsa til heimferðar, og náðum við í hraðlest- ina frá Prag. Gekk nú ferðin fljótar en upp eftir um daginn, því að eftir rúman klukkutíma vorum við komnir til Dresden. Er fátt af þeirri för að segja, og lýkur því frásögn þessari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.