Bankablaðið - 01.12.1938, Page 40

Bankablaðið - 01.12.1938, Page 40
112 BANKABLAÐIÐ ekki óhnekt í málinu“. Stefnandi hefiv krafist ómerkingar og refsingar til handa stefndum fyrir ummælin. Ómerk- ingarkröfuna ber að taka til greina, en ekki þykir ástæða til að beita refsingu. Því dæmist rétt vera: Framangreind meiðandi og móðgandi ummæli eiga að verða dauð og ómerk. Stefndur, Eggert Claessen, á að vera sýkn að svo stöddu af kröfum stefn- anda, Jóhanns Árnasonar í máli þessu. Málskostnaður falli niður. (Sign.). Björn Þórðarson. Ár 1938, föstudaginn 25. nóvember, var í hæstarétti í málinu nr. 139/1936 Jóhann Árnason gegn Eggert Claessen uppkveðinn svohljóðandi dómur: Áfrýjandi, sem skotið hefur máli þessu til hæstaréttar með stefnu 17. sept. 1936, hefir krafizt þess, að stefndi verði dæmdur til að greiða honum kr. 600.00 með 6% ársvöxtum frá 1. júlí 1929 til greiðsludags og málskostnað bæði í héraði og fyrir hæstarétti eftir mati dómsins. Stefndi hefir krafizt staðfestingar á hinum áfrýjaða dómi og málskostnaðar fyrir hæstarétti eftir mati dómsins. Það verður að telja, að bankastjórar Útvegsbanka Islands h/f hafi haft heimild til að framselja áfrýjanda eign- arrétt að peningaskáp, sem þá, eins og áfrýjanda var kunnugt, var í láni, en ekki bótakröfu byggða á því, að stefndi hefði brotið í starfi sínu sem banka- stjóri með því að lána skápinn. Með þessari athugasemd þykir mega stað- festa hinn áfrýjaða dóm, sem stefndi hefur ekki áfrýjað af sinni hendi. Eftir þessum málalokum þykir rétt að dæma áfrýjanda til að greiða stefnda 250 krónur í málskostnað fyrir hæsta- rétti. Því dæmist rétt vera: Hinn áfrýjaði dómur á að vera ó- raskaður. Áfrýjandi, Jóhann Árnason, greiði stefnda, Eggert Claessen, 250 krónur í málskostnað fyrir hæstarétti að við- lagðri aðför að lögum. Að dómurinn sé samhljóða dómbókinni vottar hæstarétt- arritari 25. nóv. 1938. Gjald: kr. 0.55. Greitt. H. G. Hákon Guðmundsson. Sýkn að svo sföddu Hérmeð vil ég reyna að verða við tilmælum Bankablaðsins um að skýra lítilsháttar frá málavöxtum. En ég vil taka það fram, að hér verður aðeins um ágrip að ræða, sakir þess að ég hefi ákveðið að gera málinu fyllri skil annarsstaðar. Hinn 12. nóvember 1926 greiðir ís- landsbanki 600 kr. reikning fyrir nýj- an „Milners“ peningaskáp, sem keyptur hafði verið fyrir milligöngu P. Þ. J. Gunnarssonar, handa bréfrit- urum bankans. Orsakirnar, sem ollu því, að þessi skápur komst á flæking voru þær, að eitt sinn kom Eggert Claessen, sem þá var bankastjóri, í herbergið þar, sem skápurinn var og lét þá annarhvor bréfritaranna að

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.