Bankablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 12
Hilmar Stefdnsson.
mannafélags í landinu, dugnað þeirra og
ósérplægni í félagsmálum. Það var hvorki
auðvelt, eða vinsælt verk að skipuleggja og
stofna starfsmannafélög, sem höfðu kjara-
og hagsmunamál ákveðinna stétta, eða
starfshópa á stefnuskrá sinni. Segir m. a.
í stofnfundarbók félagsins: Brynjólfur Þor-
steinsson setti fundinn og stakk upp á fund-
arstjóra: Haraldi Jóhannessen, sem sam-
þykkt var í einu hljóði. Fundarskrifari var
Þórður Sveinsson. Þetta gerðist meðal ann-
ars á fundinum:
Brynjólfur Þorsteinsson talaði um til-
gang væntanlegs félags starfsmanna Lands-
bankans og las upp frumvarp til félags-
laga, sem forgöngumennirnir höfðu samið
og taldi mundu mega nota sem bráðabirgð-
arlög til næsta aðalfundar. Haraldttr
Jóhannessen mælti með stofnun félagsins
og kvaðst mundi bera fram tillögu í því
efni. Hannes Blöndal kvað ekki nægilegt
að stofna félag með starfsmönnum Lands-
bankans heldur ætti það að ná til allra
bankamanna landsins. Brynjólfur kvað
svipað vaka fyrir þeim forgöngumönnum
félagsins, en fyrst væri að stofna þetta
félag, sem síðar gæti komið á samvinnu
við aðra bankamenn, eða félög þeirra. Tók
Haraldur í sama streng. Síðan fór frarn
nafnakall um það, hvort félagið skyldi
stofnað og var það samþ. með 27 samhljóða
atkvæðum fundarmanna en þeir voru
þessir: Björn Björnsson, Brynjólfur Þor-
steinsson, Einar Sv. Einarsson, Guðmundur
Jónsson, Gunnar Thordarson, Hannes
Blöndal, Haraldur Jóhannessen, Hilmai'
Stefánsson, Jón Brynjólfsson, Jóhann
Jóhannesson, Jóhanna Þórðardóttir, Mar-
grét ísólfsdóttir, Ólafur Eyvindsson, Ólafur
Thorarensen, Sesselia Guðmundsdóttir,
Sigríður Magnúsdóttir Stephensen, Sigurð-
ur Sigurðsson, Sigurjón Jónsson, Sveinn
Þórðarson, Steingrímur Björnsson, Valtýr
Blöndal, Vilhelm Steinsen, Þorbjörg Guð-
jónsdóttir, Þórunn Aðils, Þórður Sveins-
son, Þorsteinn Jónsson (í veðdeild) og Þor-
varður Þorvarðsson.
Því næst voru upp borin lög fyrir félagið
og þau samþ. að mestu óbreytt frá því sem
forgöngumennirnir höfðu gengið frá þeim,
en lögin voru í 10 gr. Þá var kjörin stjórn
fyrir félagið og hlutu kosningu í fyrstu
stjórn Jtess: Hilmar Stefánsson formaður,
Haraldur Jóhannessen og Brynjólfur Þor-
steinsson meðstjórnendur. Varamenn voru
kosnir: Ólafur Thorarensen og Jón Brynj-
ólfsson. Endurskoðendur voru kjörnir:
Þorsteinn Jónsson og Þorsteinn Jónsson.
Fleira gerðist ekki á fundinum. En mörg-
um mun hér hafa fundist að blað hafi
verið brotið í sögu bankastarfseminnar í
landinu. Því að til þessa höfðu banka-
menn ekki haft nein samtök. En með þess-
ari félagsstofnun gat ekki hjá því farið að
bankamenn í Jseim bönkum sem hér störf-
uðu færu að dæmi starfsmanna Landsbank-
ans og stofnuðu starfsmannafélög.
2 BANKABLAÐIÐ