Bankablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 25
Landsbankafólk að Hreðavatni 1952.
margar íbúðir fyrir starfsmenn bankans.
Jafnframt sem með stofnun byggingarsam-
vinnufélagsins var fengin viðurkenning á
einu af baráttumálum félagsins, að Eftir-
launasjóðurinn lánaði starfsmönnum bank-
ans til að byggja eða eignast eigin íbúðir.
Þá er vert að geta þess að Bankaráðið hefur
sýnt starfsmönnum þá velvild að gefa á 60
ára afmæli bankans, félaginu veglegan
fundarsal með búnaði á efstu hæð bankans,
svo að starfsmannafélagið hefir haft á síð-
ari árum mjög góða félagslega aðstöðu.
Framkvæmdarstjórn bankans hefir einnig á
síðari árum lagt rnjög ríflegar fjárhæðir í
Eftirlaunasjóð starfsmanna. Þá hefir Náms-
og kynnisfararsjóðurinn verið efldur og auk-
inn til hagsbóta fyrir starfsmennina. Auk
jjeirra mála sem hér hafa verið rædd hefir
félagið á liðnum árum haldið upp margs-
konar skemmtistarfsemi og margir félags-
menn verið þar boðnir og búnir til að leggja
frarn krafta sína oft við erfiðar aðstæður.
Þá hefir knattspyrnukeppni rnilli bankanna
verið háð öðru hvoru um langt árabil. Hafa
Jjar verið keppt um veglega gripi svo sem
„Silfurvíxilinn", er Bankablaðið gaf til
verðlauna, sem Landsbankinn vann til
fullra eignar, einnig hefir verið keppt um
„flaggstöng“ góðan grip og fagran, sem
einnig hefir verið unninn til eignar. Þá
hafa starfsmenn bankans háð knattspyrnu-
leiki við ýmsar stofnanir aðrar í bænum.
Skák hefir og verið mjög vinsæl dægradvöl
og margir starfsmenn liðtækir í þeirri list.
Skákkeppni hefir og farið fram á liðnum
árum við bankana. Fyrst um nokkurt skeið
við Útvegsbankann og var jsá keppt um
góðan grip og fagran — sem er skákborð
með tilheyrandi og unnu Landsbankamenn
jjað til eignar á sínum tíma. Síðari ár hefir
keppni farið fram á milli Búnaðarbankans
og Landsbankans og verið báðum aðilum
hin bezta skennntun. Þá hefir nokkuð ver-
ið gert að sameiginlegum innkaupum fyr-
ir félgasmenn. Þá hafa fulltrúar starfs-
mannafélagsins allt frá stofnun Sambands
ísl. bankamanna unnið að kjaramálum
bankamanna almennt í bezta samstarfi við
starfsmenn hinna bankanna — Útvegsbank-
ans og Búnaðarbankans.
Hér hefi ég ekki minnst nema örfárra
atriða úr aldarfjórðungsstarfi félagsins.
Margs er að minnast og af miklu að taka,
BANKABLAÐIÐ 15