Bankablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 20
Eignarkönnunin 1947.
SeÖlaskiptin i afgreiðslu-
sal Landsbankuns.
kvæmd launareglugerðarinnar. Umræður
urðu miklar um launakjör á fundi þess-
um og önnur kjaramál starfsmanna bank-
ans. í skýrslu til aðalfundar greinir for-
maður frá Joví, að bankastjórnin hafi
fallist á þá beiðni starfsmannafélags-
stjórnarinnar, að fá í sínar hendur
upplýsingar um laun og starfsaldur livers
starfsmanns, til afnota fyrir stjórn og launa-
málanefnd. Eftirlaunasjóðsmálið hafði
verið leyst. Námssjóði hafði borizt höfð-
ingleg gjöf frá bankanum í tilefni sextugs-
afmæli bankans. í sama tilefni hafði bank-
inn tilkynnt Starfsmannafélaginu, að hann
ætlaði að gefa félaginu sal á efstu hæð
bankahússins með búnaði.
ÁRIÐ 1946: Eftirlaunasjóðsreglugerðin er
nú aftur á dagskrá. Ný viðhorf höfðu skap-
ast vegna nýs frumvarps um Almannatrygg-
ingar, þar sem öllum er gert að skyldu að
greiða gjald til sjóðsins, auk þess sem jseir
greiða fast gjald í sér sjóði. Gerð var fund-
arsamþykkt þess efnis að stjórn Eftirlauna-
sjóðsins færi á fund stjórnar Almannatrygg-
ingarnefndar og ræddi Jaessi mál til hlýtar
við nefndina. Síðar á fundi er skýrt frá
]>ví að viðunandi lausn hafi fengist í mál-
inu. Á fundi 26. febr. skýrir formaður
frá lausn launamálsins og segir í gerðarbók:
„Formaður flutti stutta skýrslu af hendi
félagsstjórnar urn lausn launamálsins um
síðustu áramót, en það var eitt aðalverk-
efni félagsins. Gat formaður Jjcss að til-
lögur félagsstjórnarinnar hefðu flestar
verið teknar til greina af framkvæmdar-
stjórn bankans, en félagsmönnum eru J:>ær
flestar kunnar.“ Almenn ánægja með lausn
launamálsins ríkti á fundinum. Þá var lesið
upp nýtt frumvarp að reglugerð fyrir náms-
sjóð. Frumvarpið var síðan samjjykkt að
mestu óbreytt eins og stjórn Námssjóðsins
hafði gengið frá því. Höfuðbreytingin á
reglugerðinni var, að framvegis heitir sjóð-
urinn: Náms- og kynnisfararsjóður starfs*
mann Landsbanka íslands. Og er honum
ætlað að styrkja starfsmenn bankans til
náms og kynnisfarar erlendis. Þá var Eftir-
launasjóðurinn enn til umræðu. Upplýsti
Klemens Tryggvason, fulltrúi starfsmanna
í sjóðsstjórninni, að endurskoðun á reglu-
gerð fyrir sjóðinn væri lokið og von á nýrri
samjjykkt innan tíðar.
ÁRIÐ 1947: í fundargerð 24. sept. segir
m. a.: Síðar var tekið fyrir aðalmál fund-
10 BANKABLAÐIÐ