Bankablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 29
FIMMTU GIR*
Jón Sigurðsson bankafulltrúi í hlaupareikn-
ingsdeild Búnaðarbanka íslands varð fimmt-
ugur 10. apríl s. 1. Hann á að baki langt
starf í þjónustu bankans og hefir tekið virkan
þátt í félagsmálum bankamanna m. a. verið
forseti Sambands ísl. bankamanna.
Bankablaðið sendir þessum ágæta félaga
og samstarfsmanni bestu heillaóskir.
Sigurður Þórðarson bankafulltrúi í bók-
haldsdeild Búnaðarbanka íslands varð fimmt-
ugur 2. apríl s. 1.
Sigurður er velþekktur bankamaður og
ágætur starfsfélagi og hefir starfað í bankan-
um á annan tug ára. Hann hefir og verið virk-
ur í félagsmálum bankamanna m. a. verið í
stjórn Sambands ísl. bankamanna.
Bankablaðið árnar honum allra heilla.
kera að greiða í sérstakan reikning mánað-
arlega áætlaðar skattgreiðslur starfsmanna á
sama hátt og útsvör eru greidd.
Mötuneyti starfsmanna var stofnað í des-
ember og hefir byrjunarstarf þess gefið
góða raun. Vísast um stofnun þess til
greinar í síðasta Bankablaði.
Vinnufatnað fékk allt starfsfólk bankans
á árinu og eru það mikilsverðar kjarabætur.
Þá gat formaður þess að í athugun væri
kaup á sumar- og vetrarseli fyrir starfs-
menn til sumarhvíldar og skíðaferða. Myndi
það mál skjótt fyrir félagsmenn lagt til at-
kvæðagreiðslu.
A árinu eignaðist félagið vandað út-
varpstæki og hinn ágætasta grammófón.
Bankastjóraskipti urðu á árinu. Ásgeir
Ásgeirsson lét af bankastjórastörfum eftir
að hann hafði verið kjörinn forseti íslands.
í hans stað var skipaður bankastjóri Jóhann
Hafstein alþingismaður. Áður en skipun
hans fór fram skrifaði stjórn Starfsmanna-
félagsins fulltrúaráði bankans og vakti at-
hygli þess á því, sem fulltrúaráðinu var þó
ljóst, að innan bankans væri reyndir og
menntaðir starfsmenn að finna, er færir
væru að taka að sér bankastjórn, og óskaði
stjórn Starfsmannafélags að til þeirra væri
fyrst og fremst leitað þegar auð sæti væru
í stjórnarstólum bankans. Þeim óskum var
eigi mætt í þessum banka frekar en öðrum.
Það harma allir bankamenn.
BANKABLAÐIÐ 19