Bankablaðið - 01.04.1953, Síða 14
KNATTSPYRNULIÐ
LANDSBANKANS
1938
farið þess á leit, að félaginu yrði látið í té
ókeypis húsnæði á fjórðu hæð bankahúss-
ins. Að bankastjórnin hefði tilkynnt stjórn
félagsins, eftir að málið hafði verið lagt
fyrir bankaráð, að félagið gæti átt von á
húsnæði á 4. hæð, er eitthvað herbergi
losnaði þar. Félagsstjórnin hafði haft í
athugun líkur fyrir því hvort um það væri
að ræða, að laust luisnæði væri á þessari
hæð og komst fljótlega að því, að herbergi
það sem Útgáfufélagið „Vaka“ hafði haft
til umráða væri fáanlegt með j)ví skilyrði,
að Starfsmannafélagið keypti luisgögn þau
sem „Vaka“ átti í herberginu. Var enn
leitað til stjórnar bankans um kaup á J)ess-
um húsgögnum til handa félaginu og samþ.
bankaráð að kaupa þau og eignaðist Starfs-
mannafélagið þannig á fyrsta ári saman-
stað fyrir starfsemi sína í húsakynnum
bankans. Var samkomusalurinn nefndur
eftir fyrri eigendum „Vaka.“ Til gamans
má geta jiess að enn eru þessi húsgögn, sem
kevpt voru þá, í vörzlu félagsins og eru nú
í stjórnar- og bókasafnsherbergi félagsins.
Þá skýrði formaður frá því á J)essum fundi,
að bankaráð liefði orðið við jæim tilmæl-
um stjórnarinnar að veita félaginu árlega
styrk, 200 til 300 kr. til bókakaupa og væri
þar með fenginn vísir að bókasafni fyrir
félagið. Þá voru ýmis önnur hagsmunamál
félagsmanna rædd á fundi þessum svo sem:
Sumarleyfi starfsmanna bankans. — Þá voru
drög að reglugerð fyrir Eftirlaunasjóð starfs-
manna bankans til umræðu á fundi 20. nóv.
1928.
ÁRIÐ 1929: Á fundi 3. janúar 1929 komu
til umræðu reglur fyrir Eftirlaunasjóð
starfsmanna bankans. En félagsmenn höfðu
óskað eftir að nokkrar breytingar væru
gerðar á reglum sjóðsins og voru þessi mál
til athugunar og umræðu í félaginu á næstu
mánuðum. Þá kom til umræðu á þessum
fundi launa- og dýrtíðarmál. Voru allmikl-
4 BANKABLAÐIÐ