Bankablaðið - 01.04.1953, Síða 24
tryggss°ii, en nefndinni er ætlað að starfa
ásamt formanni félagsins Einvarði Hall-
varðssyni og fulltrúa félagsins í sjóðsstjórn-
inni: Klemenz Tryggvasyni. Þá barst félag-
inu tilmæli frá Sambandi íd. bankamanna
að taka til athugunar, hvort æskilegt væri
að koma því fyrirkomulagi á að starfsfólk
bankanna, liætti að fara heim til hádegh-
verðar. Tilmæli um þetta höfðu bomt frá
ráðuneyti foi'sætisráðherra. Skiptar voru
skoðanir fundarmanna um málið, en eng-
inn ákvörðun tekin.
ÁRIÐ 1948: Minmt 20 ára starfa félags-
ins, með veglegu hófi í Tjarnarcafé, þar 5em
þorri félaga mætti, auk boðsgesta. Eftir-
launasjóðurinn er einnig á dagskrá. Lagt
hafði verið fram uppkast að nýrri reglu-
gerð fyrir sjóðinn, sem samþykkt var. Eignir
sjóðsins voru þá krónur 3,6 miljónir, há-
mark eftirlauna er 65% af brutto launum
síðustu 5 ára. Jafnframt greiða félagsmenn
iðgjald, 3% af brútto launum.
Þá hafði stjórn Starfsmannafélagsins far-
ið þess á leit við bankastjórnina að gerðar
væru breytingar á leyfum starfsmanna. Hug-
niynd um mautofu í bankanum væri í at-
liugun og þá sérstaklega, að bankinn hefði
kaffbtofuna opna í hádeginu og stúlka
væri þar til að sjá um veitingar. Teikning
hefur verið gerð á fyrirhuguðum sal félags-
ins og hljóðfæri hafði bankinn gefið til af-
nota fyrir félagið. Þá kom til umræðu á
ný sumarskáli fyrir starfsmenn bankans. Þá
var nokkuð rætt um Samband íd. banka-
manna og breytingar á skipulgai þess, en
stjórn S. í. B., hafði beint þeim tilmælum
til starfsmannafélagsins, livort þau teldu
æskilegt að breyta skipulagi þess.
ÁRIÐ 1949: Félagið hafði tekið til afnota
hin nýju húsakynni á efstu hæð bankahúss-
ins. Enginn stór mál höfðu legið fyrir á
þessu ári. Skipulagsbreyting hafði verið gerð
á Sambandi ísl. bankamanna og fulltrúar
kjörnir til tveggja ára til setu í fulltrúaráði
þess. Rætt var um launauppbætur og höfðu
félagsmenn fengið uppbót á laun í júlímán-
aðarbyrjun. Þá var á fundi 18. nóv. kosinn
nefnd til að undirbúa stofnun Byggingar-
samvinnufélag starfsmanna Landsbankans.
Klemens Tryggvason upplýsti að líkur væru
til að stjórn Eftirlaunasjóðsins væfi fáan-
leg til að lána slíku félagi til húsabygginga
fyrir félagsmenn. í nefndina voru kjörnir
Jón Leós, Einvarður Hallvarðsson, Bjarni
Magnússon, Haukur Vigfússon, Sigurbjörn
Sigtryggsson.
ÁRIÐ 1950: Stofnað Byggingarsamvinnu-
félag Starfsmanna Lansbankans. Fyrsti for-
maður þess var kjörinn: Sigurbjörn Sig-
tryggsson. Ýms félagsmál rædd á árinu.
ÁRIN 1950-1953: Störf félagsins og við-
fangsefni þrjú síðustu árin eru svo nær-
tæk, að ekki virðist ástæða til að rifja þau
upp liér. En á þessum árum hefir, eins og
undanfarið verið ýms dægurmál á dags-
skrá, sem leyst hafa verið hverju sinni.
Hér hefir verið brugðið upp skyndi mynd-
um úr starfi félagsins á liðnum árum, eins
og það kemur mér fyrir í gerðabókum félags-
ins. Að sjálfsögðu hefir hér verið stiklað
stórum. Ýms önnur mál hafa á góma borið
og afgreidd sem þýðingu hafa liaft fyrir
félagið og íélagslífið í lieild.
Á síðustu árum hefir félagið sem fyrr,
haft afskipti af mörgum liagsmunamálum
bankamanna. Nægir þar að nefna stofnun
Byggingarsamvinnufélags bankamanna, sem
hafði á sínum tíma forystu í að byggja
„sænsku" húsin svonefndu. Þá má minna
á stofnun Byggingarsamvinnufélags starfs-
manna Landsbankans, sem þegar hafa byggt
14 BANKABLAÐIÐ