Bankablaðið - 01.12.1978, Page 9
Banka
blaðið
44. árg. - 3. tbl. nóvember 1978
Útg.: Samband isl. bankamanna
Blaðið unnu:
Gunnar Eydal
Björg Árnadóttir
Ábm.:
Sólon R. Sigurðsson
Skrifstofa:
Gunnar Eydal
Björg Árnadóttir
Bankablaðið er prentað í
2500 eintökum
Efnisyfirlit:
4 Af Bankamannaskólanum
7 Bankamannaskólinn skóla-
árið 1978
12 Óskabarnið 50 ára
15 Launatöflur
16 Þing Danska bankamanna-
sambandsins
18 Fréttir frá starfsmanna-
félögunum
31 Gjaldmiðill, mál og vog
fyrri tíma
38 Ályktun stjórnar SÍB um
kjaramál
39 Endurskipulagning seðla-
og myntútgáfunnar
42 Fréttir
Setning og prentun:
PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF.
Launamál
eru ávallt pólitísk...
. . . og það eru raunar öll þau mál sem launþegasamtök eins og
SÍB vinna að, en þau þurfa ekki að vera flokkspólitísk.
Þeir gömlu bankamenn sem stóðu að stofnun SÍB fyrir nær
44 árum síðan höfðu þá framsýni til að bera, að ákveðið var að
samtökin skyldu hvorki aðhyllast ákveðna stjórnmálastefnu né
bindast nokkrum stjórnmálaflokki. Sarna er um samtök banka-
manna á hinum Norðurlöndunum.
Þessari stefnu hefur verið haldið alla tíð síðan. Stjórnarmenn
SÍB hafa þannig verið valdir án tillits til stjórnmálaskoðana
þeirra.
Ég tel að sjaldan eða aldrei hafi betur komið í ljós en á þessu
ári að þessi afstaða SÍB hafi verið rétt. Á árinu hafa tvær ríkis-
stjórnir talið sig þurfa að grípa inn í gerða kjarasamninga með
lagaboðum á mjög svipaðan liátt. SIB mótmælti aðgerðum rík-
isstjórnarinnar í febrúar sl. og hefur einnig mótmælt þeim að-
gerðum sem núverandi ríkisstjórn hefur staðið að í september
og í desember.
Forystumenn í hinum ýrnsu launþegafélögum og samtökum
hafa á hinn bóginn þurft að standa í jreim sporum að mótmæla
aðgerðum annarrar ríkisstjórnarinnar og jafnvel hvatt til þátt-
töku í ólöglegum verkfallsaðgerðum en hafa svo lofsungið að-
gerðir hinnar ríkisstjórnarinnar, sem eins og áður sagði voru
mjög á sama veg þótt einhver blæbrigðamunur hafi verið á.
Þetta er slæm staða sem forystumenn launþega hafa komið
sér í. Enda virðist sem forystumenn a. m. k. sumra jreirra félaga
hafi vaknað af Þyrnirósasvefni sínum og gert sér grein fyrir Jrví
að pólitískt kjörnir forystumenn launþegarhreyfingarinnar hafi
misnotað bæði þá og hinn almenna félagsmann hreyfingarinnar
herfilega.
Því geri ég þetta að umræðuefni í Jressari grein að einn fyrr-
verandi ritstjóri og núverandi ráðherra skrifaði í blað sitt fyrir
nokkru um nauðsyn þess að flokkur hans kæmist til áhrifa í
ákveðnum launþegafélög-um þar sem hann hefði ekki haft áhrif
sem skyldi.
Á meðal þessara samtaka launamanna var Samband ísl banka-
manna. Ég vona að íslenskir bankamenn hafi þá gæfu til að
bera að hrinda innrás allra stjórnmálaflokka úr hvaða átt sem
er, svo að þeir geti tekið málefnalega afstöðu til allra mála, en
verði ekki hafðir að leiksoppum í pólitískum hildarleik.
Með það í liuga óska ég öllum bankamönnum gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs. S. R.S.
BANKABLAÐIÐ 3