Bankablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 11
hver þáttur um 20 kennslustundir og tók hálf-
an mánuð í yfirferð, nema gjaldeyrir sem tók
eina viku (fO stundir).
Alls voru kennslustundir um 100 hjá hverj-
um nemanda, sem er nokkur aukning frá því
sem áður var.
Almenn bankafrœði var sá þáttur, sem
fremstur var í röðinni og tók yfir ýmis almenn
atriði, sem ekki féllu beiut undir neinn hinna
þáttanna, s. s. bankasögu, bankakerfið, seðla-
banka, reiknistofnna, skipidag og stjórn, fram-
komu gagnvart viðskiptamönnum, gjaldkera-
störf og félagsmál bankamanna. Hafði hver
kennari um 2 til 6 tíma fyrir hvert efni.
Kennarar og námsefni var að mestu hið
sama og fyrr (Björn Tryggvason, Sigurður
Guttormsson, Ólafur Rósmundsson, Svein-
björn Hafliðason ogTorfi Olafsson) auk skóla-
stjórans. Þó voru hér nokkur nýmæli í náms-
efninu, aðallega varðandi bankasögu og banka-
skipulag. Tekið var nú saman námsefni um
gjaldkerastörf fyrir skólann og gerði það Torfi
Olafsson, deildarstjóri í Seðlabankanum, sem
kennt hefur þetta efni um árabil.
Keunslan í þessum þætti fór fram dagana
16. til 30. október, og prófað var 31. október.
Innlán voru kennd frá 1. til 10. nóvember,
alls um 20 kennslustundir. Prófað var 11. nóv-
ember, sem var laugardagur. Námsefnið var
tvíþætt, sparisjóðsdeildir og tékkar.
Sigurjón Finnsson, fulltrúi í IJtvegsbanka,
annaðist kennslu um sparisjóðslán, og er þar
um töluvert nýtt efni að ræða vegna tölvuvæð-
ingar sparisjóðsdeilda stóru bankanna. —
Kennslu um tékka annaðist Ólöf Magmisdótt-
ir, fulltrúi í Búnaðarbanka, en Hannes Pálsson
hafði umsjón með þessari námsgrein eins og
áður. Þar var einnig um nokkurt nýtt efni að
ræða, vegna hinna nýju reglna um tékkameð-
ferð (FIT). í lok yfirferðar fóru nemendur í
heimsókn til Reiknistofu bankanna. Nokkuð
meiri tíma var nú varið í þetta námsefni en
áður.
Gjaldeyrismál voru kennd aðeins í eina
viku, þ. e. frá 13. til 17. nóvember, alls 10
kennslustundir. Prófað var 20. nóvember. Efni
var tvískipt, þ. e. í gjaldeyrisreglur og í gjald-
eyrisdeildir. Sveinn Sveinsson, lögfræðingur í
Seðlabanka annaðist kennslu í gjaldeyrisregl-
um, en Þorkell Magnússon útibússtjóri Lands-
bankans, annaðist kennslu í málefnum gjald-
eyrisdeildanna. í stórum dráttum er námsefn-
ið svipað að stærð og inntaki og áður, þótt
kennarar séu nú aðrir.
Útlán voru kennd frá 21. nóvember til 12.
des. og prófað var 13. des. Kennslustundir voru
rúmlega 20 sem er öllu meira en verið hefur
áður. Námsefninu var skipt í stórurn dráttum
í tvennt, þ. e. verðbréf og lánastarfsemi al-
mennt annars vegar og víxla bins vegar. Bene-
dikt E. Guðbjartsson, lögfræðingnr Lands-
banka, annaðist kennslu í fyrrnefnda þættin-
um, en Gunnar Blöndal annaðist kennslu í
víxlum. Námsefnið er í stórum dráttum svip-
að því sem verið hefur áður, en öllu ýtarlega
farið út í einstök atriði nú, því tími var nú
nokkru rýmri.
Verklegar greinar voru eins konar fimmti
þáttur námskeiðsins. Skriftartíma sóttu um 15
manns, og vélritun aðrir 15, en reiknikennslu
sóttu allir nemendur, og var þeim skipt í þrjá
hópa. Kennsla í þessum greinum fór fram síð-
degis, aðallega milli kl. 16 og 18, eitt skipti í
viku í 10 vikur.
Sú nýbreytni var tekin upp til reynslu, að
nota vasatölvur við kennsluna í reikningi, og
nemendum ætlað að leysa sérstök verkefni ut-
an kennslustunda á elektrónískar skrifstofu-
vélar í banka sínum. Megin áhersla var lögð á
hagnýt reikningsdæmi í daglegum viðskiptum
bankanna. Nú var hlutur reiknikennslunnar
töluvert stærri en verið hefur áður í náms-
skránni.
Vélareikningur, æfingar á hinar gömlu sam-
lagningavélar, var kenndur, ein stund á dag,
frá 4. til 14. desember.
Reiknikennsla var í höndum Vilhjálms
Bjarnasonar, viðskiptafræðings hjá Útvegs-
banka, skriftarkennsla í höndum Þorvaldar
Jónssonar, skriftarkennara í Réttarholtsskóla
og vélritunarkennslu annaðist Hildigunnur
Eggertsdóttir, í sínum vélritunarskóla.
BANKABLAÐIÐ 5