Bankablaðið - 01.12.1978, Page 12

Bankablaðið - 01.12.1978, Page 12
Þátttakendur á haustnámskeiði Bankatnannaskólans á Hótel Húsavik i ágúst sl. Kennsluskipulag Nemendur voru 60 í byrjun, en nokkrir heltust úr lestinni strax, þannig að um 55 voru reglulegir nemendur. Var hópnum skipt í tvær jafnstórar deildir. Áður var sá háttur hafður á við mætingar nemenda, að hver hópur mætti annan hvern dag í skólann og var þrjár stundir í senn (9-12), og voru gjarnan kenndar þrjár kennslu- greinar á degi hverjum. Nú var sá háttur hafð- ur á, að livor deild mætti í skólanum á hverj- um degi, og var tvær kennslustundir í senn. Fyná hópurinn mætti kl. 9 og var til kl. 10.25 með stuttu hléi milli kennslustundanna. Síðari hópurinn kom kl. 11 og var til kl. 12.25. Sama námsefni og sami kennari var hjá báðum hóp- unum sama daginn. Hóparnir skiptust á að vera með fyrri tímann. Þeir nemendur sem koma áttu í fyrri tím- ann, mættu beint í skólann en voru komnir í síðasta lagi um kl. 10.45 á vinnustað. Síðari hópurinn stimplaði sig inn í banka sínum að morgninum, en fór svo í skólann undir kl. 11, og var þar fram að hádegi, og kom því ekki aftur í bankann fyrr en eftir matartímann. Með þessum hætti þótti vera fastar form á framkvæmd kennslunnar og mætingum nem- enda á vinnustað. Verklegu greinarnar voru yfirleitt kenndar síðdegis, eftir að afgreiðslutíma bankanna lauk, og þurftu nemendur að mæta einu sinni eða tvisvar í viku í slíka tíma. í örfáum tilvik- um fór kennsla fram í frítímum nemenda. Alls þurftu því nemendur að mæta í 12 til 15 kennslustundir í viku í vinnutímanum, eða um 30—35% af vinnuskyldu sinni á meðan á námskeiðinu stóð. Námskeiðið stóð í tvo mán- uði, þannig að af ársstarfi nemandans fara um 5—6% í nám. Undirbúningur nemenda. Samkvæmt lauslegri athugun er nú um helmingur nemenda á byrjendanámskeiðinu með stúdentspróf eða verslunarpróf einhvers konar. Er það líklega töluvert hærra hlutfall en áður var í þessum námskeiðum. Flestir nemendanna hafa starfað í banka sínum meira eu 6 mánuði. Einkunnir Úr einkunum fyrir prófin fimm verður reiknuð meðaleinkunn fyrir hveni nemanda. Prófformi hefur lítillega verið breytt, þannig að færri nemendur ættu nú að fá mjög háar einkunnir, og dreifing almennt að verða meiri en áður var. Skólaslit fara væntanlega fram 18. desember, og verður jjeirra getið síðar í blaðinu. 6 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.