Bankablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 16
Magnús Fr. Árnason.
lagningu þess af hálfu bankanna var lokið á
miðju ári 1977.
Helgi gerði að umtalsefni hagkvæmni tölvu-
vinnslu, og í því sambandi sýndi hann fram á
athyglisverðan samanburð á færslumagni og
starfsmannafjölda í nokkrum deildum Lands-
bankans yfir 10 ára tímabil, annars vegar þeim,
deildum, sem notið hefðu tölvuvinnslu, og svo
hins vegar þeim, sem enga slíka þjónustu hefðu
haft:
A fgreiðsludeildir A fgreiðslujj. Starfsmannafj.
Deild A Tölvuvinnsla aukning 71% fækkun 39%
- B Tölvuvinnsla aukning 92% fækkun 27%
- C Tölvuvinnsla aukning 41% fækkun 24%
- D An tölvuvinnslu aukning 8% aukning 4%
- E Án tölvuvinnslu aukning 56% aukning 19%
- F Án tölvuvinnslu aukning 98% aukning 110%
Loks kvað Helgi það sína skoðun, að mikil-
vægi Bankamannaskólans færi nú vaxandi
vegna sameiginlegrar tölvuvinnslu bankanna,
og myndi hlutverk skólans í vaxandi mæli
verða í því fólgið, að kenna nemendum undir-
stöðuatriði við yfirferð liinna margvíslegu úr-
vinnslugagna frá RB.
Magnús Fr. Árnason, hrl. Búnaðarbanka ís-
latids flutti erindi um ný þinglýsingarlög, sem
samþykkt voru á Alþingi 10. maí 1978.
Þar kom m. a. fram að þetta er allmikill
lagabálkur, sent liefir átt sér langan aðdrag-
anda, því flestar efnisreglur um þinglýsingar
voru felldar niður með gömlu þinglýsingar-
lögunum nr. 30, 7. maí 1928. Lögin byggjast
í flestum meginatriðum á frumvarpi til laga
um þinglýsingar, sem þeir dr. Ármann Snævarr
og Ólafur Pálsson sömdu á sínum tíma og var
lagt fyrir Alþingi 1958-1959, aftur á þinginu
1962-1963 og loks 1963-1964, en hlaut ekki
afgreiðslu.
Dr. Gaukur Jörundsson hefir endurskoðað
þetta gamla frumvarp með aðstoð tveggja
starfsmanna úr dómsmálaráðuneytinu, þeirra
Þorleifs Pálssonar og Þorsteins A. Jónssonar.
Lög þessi bæta úr brýnni joörf og stuðla áreið-
anlega að bættu ski]tulagi á öllu veðmálabók-
haldi í landinu.
Stjórn Bankamannaskólans ákvað því að
kynna bankamönnum helstu efnisatriði laga
þessara, jDar sem jnau skipta bankana mjög
miklu máli og öll gerð veðskjala byggist að
verulegu leyti á þeim.
Lög þessi taka gildi 1. janúar 1979.
Svavar Jóhannsson, skipulagsstjóri Búnaðar-
bankans sagði m. a.:
„Undanfarið höfum við verið að korna upp
diskettuvélum í útibúin utan Reykjavíkur
tengdum Reiknistofunni gegnum sírna, og um
næstu áramót verða svo til öll útibú bankans
komin með slík tæki.
Fyrsta vélin af þessu tagi í eigu bankans var
sett upp á Akureyri í tilraunaskyni og fékkst
það góð reynsla af henni, að brátt var tekin
ákvörðun um að vélvæða öll útibúin, þar sem
aðstaða er fyrir bendi.
Þegar diskettuvél eða símatölva, eins og við
köllum liana oft, fór í gang á Akureyri, tókum
við strax upp ]tá aðferð að bóka tékka á alla
afgreiðslustaði bankans, sem fyrir voru í R.B.
og geymum alla tékka á innlausnarstað.
Þetta hefur gefist okkur mjög vel, það spar-
ast mikill tími við röðun, sendingu og skrán-
ingu, sem annars færi fram áður en póstlagt er.
10 BANKABLAÐIÐ