Bankablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 17
Ef allir bankar gætn komið sér saman um
að bóka á þennan liátt hver á annan og varð-
veita tékkana á innlausnarstað, mundi J:>að að
okkar mati spara mikla vinnu, bæði í inn-
lausnarbanka og R.B. Við getum ekki komið
auga á mikla annmarka á þessu kerfi, því að
listarnir bera með sér hvar tékkinn er innleyst-
ur og í innlausnarbanka sést í hvaða önn tékk-
inn er.
Ef reikningsbanki þarf á slíkum tékka að
lialda eða upplýsingum um hann, þá mætti
senda fyrirspurn um það gegnum R.B., á sama
hátt og gert er með aðra tékka, sem ekki koma
fram við skjalaskipti og yrðu þeir þá sendir
með fyrstu ferð til reikningsbanka. í sunnun
tilfellum mætti senda ljósrit.
Við höfuin haldið skrá yfir fjölda fyrir-
spurna varðandi slíkar bókanir og eru þær ekki
mjög margar og hefur farið fækkandi.
Þar sem þeim útibúum fjölgar stöðugt, sem
taka í notkun diskettuvélar með símatengingu
við R.B. þá er það okkar skoðun, að Jrað sé
orðið brýnt verkefni að ná samstöðu um að
bankarnir bóki tékka hver á annan og varð-
veiti þá, eða sendi eftirá í pósti, en Jrað síðar-
Svavar Jóhannsson.
Sigurður P. Björnsson.
nefnda útheimtir e. t. v. meiri vinnu. Hér er
að sjálfsögðu aðeins átt við innlausnarstaði
utan höfuðborgarsvæðisins. Fyrr en Jietta fæst
fram koma símatölvurnar ekki nema að litlum
notum að mínu mati“.
Með nýjum samningi, sem gerður liefur ver-
ið um starfsskipulag Bankamannaskólans sbr.
grein í Bankablaðinu 3. tölubl. 1977 var gert
ráð fyrir að starf skólastjóra Bankamannaskól-
ans skuli vera fullt heilsársstarf, og hefur nú
verið ráðinn nýr skólastjóri, Þorsteinn Magn-
ússon, sem á undanförnum árum hefur verið
kennari við Verslunarskóla íslands, en Þor-
steinn hefur kennt við Bankamannaskólann
frá stofnun hans. ,
Ég vil bjóða Þorstein Magnússon velkom-
inn til starfa við skólann og jafnframt óska
honum gæfu og gengis í sínu nýja starfi.
Jafnframt vil ég nota Jietta tækifæri til að
Jrakka skólanefnd, kennurum skólans og starfs-
mannastjórum banka og sparisjóða góða sam-
vinnu og ánægjulegt samstarf á liðnum árum.
Skólanum óska ég alls velfarnaðar í framtíð-
inni.
Gunnar H. Blöndal.
BANKABLAÐIÐ 11