Bankablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 18
HSKABARNID 50 ÁRA
Eftir Árna Sigurjónsson. - Myndir gerði Helgi Guðmundsson
Fimmtíu ár eru liðin frá því óskabarn starfs-
manna Landsbankans og Seðlabankans sá dags-
ins ljós, ef svo má að orði komast. Þetta óska-
barn er Eftirlaunasjóðurinn. Fæðing þess gekk
að vísu all-erfiðlega, því að áður en hún var
um garð gengin, hafði það verið full níu ár í
móðurlífi Fjallkonunnar, sem í þessum efnum
var Aljnngi Íslendinga.
Fyrstu drög að sjóðsmyndun fyrir starfs-
menn bankans voru í lögum um Landsbank-
ann frá því i nóvember 1919. í 9. gr. laganna
segir svo: „Stofna skal styrktarsjóð handa starfs-
mönnum bankans, ekkjum þeirra og ómegð,
og skal bankinn leggja fram til stofnunar hans
25000 kr. í eitt skipti fyrir öll“. Fastir starfs-
menn skyldu gxeiða 3% af árslaunum sínum
í sjóðinn, án frekari framlaga frá bankanum.
Ráðherra sá, er fór með bankamál átti að
ákveða með reglugerð um fyrirkomulag sjóðs-
ins, að fengnum tillögum bankastjórnar.
Ekki verður séð, að sjóðurinn hafi tekið til
starfa á þessum tíma, en stofnfé sjóðsins mun
hafa verið lagt fram árið 1924. Það tók því
alllangan tíma að fóstrið næði eðlilegum
þroska og liti dagsins ljós. Meðgöngutíminn
Árni Sigurjónsson.
varð alls níu ár, eins og fyrr segir. Eflaust má
kenna jnoskaleysið því, að fleiri fóstur voru
samtímis og nærri því jafn lengi á leiðinni,
svo sem frumvarp um seðlaútgáfurétt Lands-
bankanum til handa o. fl.
Eftir að fæðingin var loks afstaðin og orðin
staðreynd með lögum um Landsbankann nr.
10 frá 15. apríl 1928, fékk óskabarnið ágætt
veganesti fyrstu árin, því að bankaráðið vann
að því bráðan bug að leggja því lífsreglurnar
með sérstakri reglugerð, er samþykkt var í
nóvember sama ár. Var því þá gefið nafnið:
Eftirlaunasjóður starfsmanna Landsbanka ís-
12 BANKABLAÐIÐ