Bankablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 32
Stjórn Félags starfsmanna Landsbanka íslands, talið frá vinstri: Ásdis
Gunnarsdóttir, Birgir Jónsson, Svana Samúelsdóttir, Benedikt Guðbjartsson,
Guðbjörg Gisladóttir, Hermann Stefánsson, Sigrún Ólafsdóttir.
Sögu. Þar flutti ávarp m. a.
Árni Vilhjálmsson, prófessor,
formaður bankaráðs Lands-
banka íslands, og færði
starfsmannafélaginu að gjöf
veglegan afmælissjóð að upp-
hæð kr. 10 milljónir, sem skal
notast á næstu 5 árum. Auk
þess voru félaginu færðar
margar góðar gjafir. f þessu
hófi voru allir fyrrverandi for-
menn félagsins, sem nú eru á
lífi, heiðraðir. Hátíðaræðu
kvöldsins flutti Vilhelm Stein-
sen, einn af stofnendum F.S.
L.í. Á laugardagsmorgun fór
fram keppni á milli banka í
hand- og fótbolta og síðar um
daginn var efnt til skákmóts.
Frá þessum mótum er sagt
nánar á öðrum stað í þessum
fréttapistli. Eftir hádegi var
opið hús og opnuð „Sögusýn-
ing“ að Laugavegi 77, sem
var unnin og sett upp undir
stjórn Haraldar Hannessonar.
Lýsti sýningin í munum og
myndum starfi félagsins í 50
ár og þeim breytingum sem
orðið hafa á vinnubrögðum
bankamanna. — Á fimmta
hundrað gestir komu á þessa
sýningu og fengu sér hress-
ingu sem boðin var þennan
dag. Myndir af sýningunni
birtust í 3ja tölublaði Banka-
blaðsins 1978. Undir stjórn
Bjarna G. Magnússonar fé-
lagsmálafulltrúa Landsbank-
ans, hefur verið unnið að út-
komu afmælisblaðs, og er
vonast til, að það komi út í
lok nóvember. Efni þessa
blaðs er fjölbreytt m. a. ávörp,
viðtöl og saga félagsins. —
Blaðið er rúmar 90 síður.
Merkisafmæli 1978
Helgi Jónsson, Akranesi
50 ára, 9. febrúar.
Dóra Bernharðsd., Akureyri,
50 ára, 8. júní.
Ingólfur Hávarðsson, Eskifirði,
65 ára, 6. júlí.
Páll Jónsson,
65 ára, 7. júlí.
Ólöf Valdimarsdóttir,
50 ára, 18. sept.
Magnús Björnsson, Akureyri,
50 ára, 1. nóv.
Sigurbjörn Sigtryggsson,
60 ára, 17. nóv.
Svava Ólafsdóttir
60 ára, 24. nóv.
Hannes Þorsteinsson
60 ára, 7. des.
Starfsafmæli 1978
Kristinn Júlíusson, Selfossi,
40 ára, 20. júní.
Jósef H. Sigurðsson
40 ára, 19. nóv.
Ingólfur Þorsteinsson
45 ára, 30. des.
Orlofshús
Sumarbúðirnar í Selvík
hafa nú verið starfræktar í
tólf sumur við sívaxandi vin-
sældir, og var síðastliðið sum-
ar sérlega hagstætt hvað veð-
urfar snertir, og kom þá enn
betur í Ijós hve þörfin er brýn
fyrir fleiri bústaði, þar sem
mun færri komast að en vilja.
Starfsmannafélagið og Sel-
nefnd hafa því lagt kapp á að
koma upp fleiri bústöðum.
Skógrækt ríkisins hefir leigt
Landsbanka íslands undur-
fagurt skóglendi ca. 6 ha að
stærð í Þórðastaðaskógi í
Fnjóskadal.
Hafist var handa um bygg-
ingu 5 bústaða ca. 60 ferm.
á þessu landi í haust. Þegar
er búið að leggja veg að land-
inu og koma upp grunnum
26 BANKABLAÐIÐ