Bankablaðið - 01.12.1978, Side 35
bankakeppni í innanhúss-
knattspyrnu og handknattleik.
Úrslit urðu þau, að lið Lands-
bankans vann báðar greinarn-
ar. Úrslitaleikurinn í knatt-
spyrnu var við lið Seðlabank-
ans og lauk með 6-2, en í
handknattleik við lið Verslun-
arbankans og lauk 10-7.
Hinn 30. sept. sl var haldið
afmælismót F.S.L.Í í tilefni af
50 ára afmæli félagsins. Keppt
var í handknattleik og knatt-
spyrnu.
Úrslit urðu þau að lið
Reiknistofu vann lið Lands-
bankans í knattspyrnunni 9-3,
en í handknattleiknum vann
lið Landsbankans lið Verslun-
arbankans 13-9. íþróttanefnd
þakkar öllum þeim banka-
mönnum sem þátt tóku í mót-
inu, og vonar að hin góðu
samskipti sem skapast hafa
milli bankanna í íþróttum megi
haldast.
Þrir af fimm sigurvegurum á afmæiisskákmóti FSLÍ.
Skákfréttir úr
Landsbankanum
Skákáhugi Landsbanka-
manna var með líflegasta
móti á síðasta starfsári og
skal hér stuttlega gerð grein
fyrir helstu viðburðum. í nóv-
ember 1977 tókst að safna
saman öllum fremstu hrað-
skákmönnum bankans, enda
stórviðburður framundan,
keppni við læknalið Landspít-
alans, sem tekið hafði okkur
heldur óþyrmilega til bæna
nokkrum mánuðum áður. —
Teflt var á 10 borðum, og
skiptust liðin á um forystuna.
Svo mjótt var á mununum, að
þegar tveim síðustu skákun-
um var ólokið, var staðan 49:
49. Þessar tvær skákir féllu
doktorunum í hendur, og þar
með sigurinn, 51:49.
Jólahraðskákmótið var
næst á dagskrá, og voru
keppendur 12 talsins. Tefldar
voru 22 skákir og röð efstu
manna varð þessi:
1. Jóhann Örn Sigurjónsson
20,5 vinningar.
2. Vilhjálmur Þór Pálsson 18.
3. Hilmar Viggósson 16.
Þá var komið að skák-
keppni stofnana og þar áttti
Landsbankinn 1. sætið frá ár-
inu áður að verja. Heldur
hafði þó saxast á sigurliðið,
því Bragi Kristjánsson og
Leifur Jósteinsson höfðu
hrókeraði yfir í Búnaðarbank-
ann, og Hilmar Viggósson
kominn vestur á Hellissan.
Þetta reyndist of mikil blóð-
taka og Landsbankinn varð
að gera sér 12. sætið að góðu,
með 141/2 vinning af 28 mögu-
legum. Vinningar skiptust
þannig innan sveitarinnar.
1. borð Jóhann Ö. Sigurjóns-
son 5,5 af 7 mögulegum 79%
2. borð Vilhjálmur Þ. Pálsson
1 af 5 mögulegum 20%
3. Sólmundur Kristjánsson
3,5 af 5 mögulegum 70%
4. Gunnar Antonsson 3 af 6
mögulegum 50%
BANKABLAÐIÐ 29