Bankablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 36

Bankablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 36
Varam. Bergur Björnsson 1,5 af 3 mögulegum 50%. Meistaramót Landsbankans fór fram í mars og tefldu 9 keppendur tvöfalda umferð. 15 v. af 16 mögulegum 2. Sólmundur Kristjánsson 12 v. 3. Vilhjálmur Pálsson 10 v. Úrslit urðu þessi: 1. Jóhann Ö. Sigurjónsson 30. september sl. gekkst Starfsmannafél. Landsbanka íslands fyrir miklu hraðskák- móti í sambandi við 50 ára afmæli félagsins. Mótið var haldið daginn eftir afmælis- hófið að Hótel Sögu, og átti upphaflega að byrja kl. 9 um morguninn. Þessu var þó breytt til allrar hamingju og kl. 14 voru 9 manns mættir til leiks og þóttu það góðar heimtur eftir gleðina frá því kvöldið áður. Tefldar voru 16 skákir og varð röð efstu manna þessi: 1. Jóhann Ö. Sigurjónsson 16 v. 2. Sólmundur Kristjánsson 12 v. 3. Vilhjálmur Þ. Pálsson 11,5 v. í nóvember var keppt tví- vegis út á við. Gegn Veður- stofu íslands vannst stórsigur, 84:44, en hins vegar töpuðum við fyrir Búnaðarbanka ís- lands, 771/2 : 841/2. F.h. Taflnefndar Landsbank- ans: Jóhann Örn Sigurjónsson Frá Starfsmannafélagi Samvinnubanka íslands hf . Þann 9. nóvember voru lið- in 15 ár frá stofnun Starfs- mannafélags Samvinnubanka íslands hf. Er margs að minn- ast, þó árin séu ekki mörg, því að stöðugt hefur bankinn verið að stækka og félögum starfsmannafélagsins þar af leiðandi fjölgað og hagur þess batnað. Afmælisins var minnst á árshátíð félagsins sem haldin var í „Lækjar- hvammi“, Hótel Sögu 18. nóv. Var vel mætt og mikið fjör. í tilefni afmælisins var starfs- mannafélaginu fært rausnar- legt framlag til sumarhúss fé- lagsins og vakti það að sjálf- sögðu mikla ánægju meðal veislugesta. Föstudaginn þann 11. júní var farið í hið árlega banka- ferðalag og haldið í Þórsmörk í blíðskaparveðri. Daginn eftir reyndist veður ekki jafngott, vindur og af og til rigning. Flestir lögðu samt á sig að fara í 4 til 5 tíma gönguferð og var það án efa þess virði. Um kvöldið var svo stutt kvöldvaka úti, þrátt fyrir veðr- ið, en þeim mun lengur sung- ið og skemmt sér fram eftir nóttu í tjöldunum. Á sunnu- dagsmorgun var komið hið fegursta veður og haldið í göngutúr áður en farið var heim á leið. Voru margir þreyttir er til Reykjavíkur kom, en ánægðir. í byrjun október gengu svo 28 manns á Esjuna í fegursta veðri. Voru nú allir vel út sofnir og því ekki eins þreyttir þegar niður var komið, eins og eftir Þórsmerkurgöngurn- ar. í vetur var svo haldið spila- og myndakvöld í matsal bank- ans. Voru sýndar myndir úr bankaferðalögum og spiluð félagsvist. Tókst þetta með ágætum og ákveðið að halda spilakvöld síðar. Sumarhús félagsins er mjög vel nýtt og ekki síður um helgar að vetrinum og er það ánægjulegt. Leigu er stillt í hóf eins og hægt er. Æskilegt væri að starfsfólk útibúa bankans sem fjær eru, ættu meiri kost á að taka þátt í bankaferðalagi og árs- hátíð félagsins, en meðan fjárhagurinn er ekki of sterk- ur, er erfitt að koma til móts við þá félagsmenn með styrkj- um svo að þeir geti vel við unað. Vonandi verður hægt að ráða bót á því síðar meir. S.S.Í. 30 BANKABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.