Bankablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 42
DALIR OG SPESÍUR FRÁ 1849
„Slegnir hafa veriö i Danmörku nýir siljurpeningar, meö
mynd hins nýja konungs, FriÖriks VII., á jramhliöinni. —
Birtast hcr myndir aj tveimur peirra. Ejri myndirnar eru
aj rikisbankadal, en hinar neðri af spesiu".
eyri. Hið stolna var metið á 36 skildinga. Fyr-
ir þennan „voða glæp“ var drengurinn dæmd-
ur til að kaghýðast og til að þræla ævilangt í
fangelsi úti á Brimarhólmi. Dómurinn var þó
af yfirrétti mildaður í tveggja ára fangelsisvist
í Reykjavík.
Á tímabilinu 1835-40 var verð á íslenskum
hókum sem hér segir:
Núma rímur, óbundnar, 42 skildingar,
Njáls-saga, óbundin, 1 ríkisdal og 40
skildingar,
Kvæði Jónasar Hallgrímssonar 1 ríkisdal.
Árið 1840 var hæsta útsvar í Reykjavík 21
ríkisdalur eða sem næst jaliivirði einnar
brennivínstunnu (120 potta).
1842 var komið gistihús í Reykjavík, þar
kostuðu:
Rúmlán 8 skildinga,
kaffibolli 6 skildinga,
kafli með tvíbökum 8 skildinga,
venjtdeg máltíð 10 skildinga og
betri máltíð 12 skildinga.
Spesía var talin 4 gullkróna virði og ríkis-
dalurinn þá tveggja. Fyrir einn ríkisdal gat
maður þá fengið betri máltíð (steik) lianda
átta manns, en harla lítið fengi maður nú fyrir
jafnvirði tveggja gullkróna eftir gengisskrán-
ingu Seðlabankans í dag (okt. ’78) eða varla
sæmilega einfalda máltíð fyrir einn.
Krónumyntin var innleidd á árunum 1873-
1875.
Vogarmælir
Skippund 320 pund,
1 skippund = 20 líspund,
1 líspund = 32 merkur eða 16 pund,
1 skippund = 4 vættir á 80 pund,
1 fjórðungur = 10 pund eða 20 merkur,
1 pund = 2 merkur,
1 lóð = Yia úr mörk.
Minnsta þyngd var eitt gran eða byggkorns
þyngd.
Lagarmælir
Stikkfat 1200 pottar,
pípa 480 pottar,
uxahöfuð 240 pottar,
áma 160 pottar,
lagertunna 120 pottar,
anker eða mælir 40 pottar,
áttungur 15 pottar,
kútur 8 pottar,
kanna 2 pottar,
mörk hálfur pottur.
Hér ber að liafa í huga að pottur er ekki ná-
kvæmlega sama og líter. Líter af vatni er sem
kunnugt er 1000 gr. en pottur 965 gr.
Lengdarmál
1 faðmur er 3 álnir danskar.
1 alin skiptist í 4 kvartil (nú 24 þumlung-
ar, í fornöld 18 og i/5 þumlungar).
Alin er talin tveggja meðalmanns skó-
leista lengd.
1 þumlungur („tonnna") 2,61 sm.
36 BANKABLAÐIÐ