Bankablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 43
Fiskurinn hertur.
Þingmannaleið er fimm danskar mílur
eða 20 þúsund faðmar.
Bæjarleið er talin 600 faðmar, tólfræð,
eða 720 faðmar.
Örskotshelgi var talin 240 faðmar, en
innan þessarar fjarlægðar frá túngarði
var sekur maður friðhelgur.
Kornmál
Fyrr á öldum var korn mælt í sáldum, mæl-
um og fjórðungum.
1 sáld = 480 merkur,
mælir = 80 merkur,
fjórðungur = 20 merkur.
í sambandi við mælinn mun vera tilkomið
orðatiltækið „Kornið fyllir mælinn“.
Skipting sóiarhrings og eyktamörk
Rismál klukkan 6 að morgni,
dagmál klukkan 9 að morgni,
hádegi klukkan 12 að degi,
miðmunda klukkan 11/2 eftir hádegi,
nón klukkan 3 eftir hádegi,
miðaftan klukkan 6 eftir hádegi,
náttmál klukkan 9 eftir hádegi,
miðnætti (lágnætti) klukkan 12,
ótta klukkan 3 að nóttu.
Einnig var sagt „jöfnu báðu nóns og mið-
aftans“ sem þá merkti klukkan 4i/2 eftir há-
degi.
Eyktamörk eða dagsmörk voru ákveðin frá
bæjum eftir því hvar sólina bar yfir á hinum
ýmsu tímum dags. Höfðu eyktamörk þessi ým-
is nöfn svo sem: Miðmundaklettur, Hádegis-
bunga, Náttmálaskarð, Nóngil og ótal önnur.
Dagslátta var til forna nefnd eyrisvöllur,
sem þýddi það að fyrir að slá þennan flöt í
túni var greiddur sex álna eyrir (%o úr kú-
gildi), þar í meðtalið fæði. Dagsláttan var fer-
hyrndur völlur, 30 faðmar á hvern veg. Var
eyrisvöllurinn þó mun minni í fornöld þegar
alinin var aðeins 18 og i/ þumlungar. Engja-
dagslátta var miklu stærri völlur.
Sftivtalin fyrirtœlii óska lanListarfsmönnum og fjölshyldum þeirra gleclilegra jóla
Pappírsvörur hf.,
Borgarfell hf.,
Skólavörðustíg 23, R.
Fiskveiðasjóður íslands
Spítalastíg 10, R.
Sanitas hf.,
Köllunarklettsvegi, R.
Norræna verslunarfélagið hf.,
Skipholti 62, R.
Ólafur Þorsteinsson & Co hf.,
Vatnagörðum 4, R.
Saturnus
Skúlagötu 32, R.
Sportval
Laugavegi 116, R.
Solnaprent
Kirkjusandi, R.
Steinavör hf,,
Tryggvagötu 4, R.
Týli hf.,
Austurstræti , R.
OÍOtOZOtOiOÍOÍQÍOÍO
BANKABLAÐIÐ 37