Bankablaðið - 01.12.1979, Side 17

Bankablaðið - 01.12.1979, Side 17
Banka blaðið 45. árg. - 2. tbl. desember 1979 Útg.: Samband isl. bankamanna Blaðið unnu: Vilhelm G. Kristinsson Björg Árnadóttir Auglýsingar: Karl H. Sigurðsson Ábm.: Árni Sveinsson Skrifstofa: Vilhelm G. Kristinsson Björg Árnadóttir Bankablaðið er prentað í 2500 eintökum Efnisyfirlit: bls.: 3 Spurning Bankablaðsins 10 31. þing SÍB 11 Stjórn og varastjórn SÍB 15 Starfið 1977 til 1979 19 Ályktanir 31. þingsins 21 Launatafla 22 Reglugerð um kjaradeilusjóð 23 Reikningar SÍB 26 Ráðstefna um tækniþróun 34 Stefna NBU í tæknimálum 36 Fræðslunefnd NBU 37 Statistiknefnd NBU 38 Minning 40 Launþegasjóðir 43 Frá Bankamannaskólanum 45 Frá starfsmannafélögunum 57 Trúnaðarmenn SÍB 60 Stjórnir starfsmannafélaga 61 Skipting bankamanna í launaflokka 62 Nýmæli í kröfugerð 65 Framtíðarskipan menntunar- mála Setning og prentun: PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF. Forsíðumyndir: Guðmundur Ingólfsson. í Sambandstíðindum hefur að undanförnu verið vikið að þeim viðræðum sem átt hafa sér stað um nýjan kjarasamning milli bankanna og SÍB. Á fyrsta fundi aðalnefnda beggja aðila, sem haldinn var þann 19. sept. sl., kom fram sú afstaða bankanna, að þeir töldu sig ekki hafa verið í Jreirri aðstöðu sl. sumar að geta samið að nýju um þá 3% gTunnkaupshækkun sem koma átti til framkvæmda Jrann 1. júlí sl. Slík samningagerð hefði tekið fram fyrir hendur Alþingis og ríkisstjórnar, en vilji þeirra aðila hvað viðvíkur grunnkaupshækkunum kemur franr í lög- um sem samþykkt voru á Aljringi Jrann 7. apríl sl. og staðfest þann 10. sama mánaðar, en með þeim eru grunnkaupshækkanir bannaðar. I þessu Bankablaði eru birt svör nokkurra bankamanna við spurningum sem SÍB lagði fyrir þá. í einu svarinu segir svo: „Það er ömurleg lýsing á samstöðuleysi okkar að vinna samn- ingslaust fyrir launum, sem lægri eru en útrunnir, frjálsir samn- ingar buðu sem lágmark." Það er rétt hjá þeim sem svarar, að við erum nú með lausa samninga, og vinna okkar er lægra launuð en garnli kjarasamn- ingurinn bauð upp á. En það stafar ekki af samstöðuleysi bankamanna, heldur af inngripi stjórnvalda í gerða kjarasamn- inga. Slíkar aðgerðir stjórnvalda hafa verið að ágerast hin síð- ari ár, og má þar til nefna, að ríkisstjórn sem kennd er við Geir Hallgrímsson og sat ’74 til ’78 gTeip með lagasetningum í febr. og maí ’78 inn í gerða kjarasamninga. Andstæðingar þeirrar stjómar nefndu þessi lög „kaupránslögin“, og í munni margTa ganga þau enn undir því heiti. Haustið ’78 tók við Jiriggja flokka stjórn. Hún skerti kaup- greiðsluvísitöluna Jrann 1. des. ’78 um 8 stig, en slíkt er auð- vitað inngrip í kjarasamninga því í þeim öllum er ákvæði um óskerta vísitöluuppbót á laun, en í stað þessara 8 vísitölustiga kæmi svonefndur ,,félagsmála]rakki“ launafólki til góða. í augum þessarar ríkisstjórnar hafa bankamenn líklega ekki talist til launafólks. í Jrað minnsta hefur SÍB ekki verið boðið, af hálfu stjórnvalda, upp á eitt eða neitt í stað hinnar skertu vísitölu. Síðasta og veigamesta inngrip stjórnvalda eru svo lögin frá 10. apríl sl„ sem nefnd hafa verið „Ólafslög". Er jxið ólíkt sakleysislegra heiti en á áðurnefndum lögum frá ’78. Þó Jrarf BANKABLAÐIÐ 1

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.