Bankablaðið - 01.12.1979, Page 21

Bankablaðið - 01.12.1979, Page 21
Sigmundur Andrésson, deildarstjóri aðalbókhalds Seðla- banka íslands. Hefur starfað rösk 22 ár í banka. Ég vænti sterkrar sam- bandsstjórnar, sem fylgt get- ur til sigurs baráttu okkar um laun sem framfleytt geti fjöl- skyldu. Ég þekki engan bankamann með fjölskyldu á framfæri, sem einungis lifir af fastalaunum. Öll launahlutfölI í þjóðfélaginu hafa riðlast á síðustu árum og bankarnir eru að verða þjálfunarstöð fyrir vinnumarkaðinn, þeirtakavið ungu fólki úr skólum og kenna því, síðan horfum við á eftir þessu fólki yfirgefa bank- ana og hverfa til betri kjara. Það er ömurleg lýsing á sam- stöðuleysi okkar að vinna samningslaust fyrir launum, sem lægri eru en útrunnir, frjálsir samningar buðu sem lágmark. Áslaug E. Jónsdóttir, gjaldkeri í Verzlunarbanka Islands, Breiðholtsútibúi. Hefur starfað 15 ár í banka: Komandi kjarasamningur ætti að vera það skýrt orðað- ur að hægt væri að fletta upp í honum og benda óvéfengj- anlega á ákveðin atriði svart á hvítu. Æskilegt væri að sam- ráð væri haft við starfsfólk áður en ákvarðanir um breyttan opnunartíma væru teknar. Nauðsynlegt er að kjarasamningar kveði skýrt á um borgun fyrir yfirvinnu og samræmt verði með öllum bönkum, hvenær yfirvinna hefst og hvernig hún skuli borguð. Einnig er nauðsyn- legt að greiðsla fyrir síðdegis- afgreiðslu verði eins í öllum bönkum. Æskilegt væri að starfsfólk það, sem náð hefur 15 ára starfsaldri staðni ekki í launa- stiganum. Þó að kjarasamningar kveði á um að laun séu lágmarks- laun hefur honum yfirleitt ver- ið fylgt fram sem hámarks- samningi, þessu þarf að breyta. Vinnuaðstaða í bönkum er misjöfn. Margir bankar eru með gott húsnæði og aðstöðu til vinnu, og mötuneyti eru til fyrirmyndar, en því miður eru ekki allir svo heppnir að hafa slíka aðstöðu. BANKABLAÐIÐ 5

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.