Bankablaðið - 01.12.1979, Qupperneq 22
Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Landsbanka Íslands, sparisjóðsdeild
aðalbanka. Hefur starfað 15 ár í
banka.
Fyrst og fremst að launa-
flokkunum verði lyft og fólk
sem starfað hefur í 5 ár fái
5% álag og þeir sem starfað
hafa í 10 ár og lengur fái 7%
til 9% álag og sé þar með
haldið á þeirri braut, sem að
mínu mati er mjög brýnt, að
koma á móts við þá sem starf-
að hafa lengst en jafnframt
stoppa í launaflokkum því það
er tímabært að langur starfs-
aldur sé einhvers metinn.
Starfsmaður ætti að hafa
náð 8.3. eftir 7 ára starf. Einn-
ig að orlofsframlag 1. júní
miðist við launaflokk 9.3.
Það hlýtur að vera mannúð-
arsjónarmið í þjóðfélagi þar
sem meirihluti kvenna vinnur
úti að konur geti verið frá
vinnu í 6 mánuði á hálfum
launum vegna barnsburðar.
Það væri óneitanlega vel til
fallið að koma því inn í kjara-
samninga á sjálfu barnaárinu.
Mér finnst tímabært að það
ákvæði sem nú er í fyrsta
sinn í kröfugerð um menntun
og starfsþjálfun starfsmanna,
sem einhverra hluta vegna
ekki geta stundað fyrri störf,
nái fram að ganga.
Þórlaug GuSbjörnsdóttir,
fulltrúi í innheimtudeild Iðna'öar-
bankans. Hefur starfað 13 ár í banka.
Tryggðar verði raunhæfar
verðbætur á laun. Áhersla
verði lögð á skemmri tíma til
að vinna sig upp í launum,
einnig ákveðnari skilgrein-
ingu á röðun í launaflokka,
hvernig á að meta menntun og
fyrri starfsreynslu. Ótímabært
er að tala um verulega hækk-
un í eftirvinnukaupi fyrr en
samningar hafa tekist um að
skilyrðislaust skuli greiða eft-
irvinnu sé unnið fram yfir
venjulegan vinnutíma. Barn-
eignarfrí fyrir karlmenn skap-
aði meira jafnrétti milli kynj-
anna, er þá ekki lengur hægt
að bera því við að karlmenn-
irnir séu öruggari starfskraft-
ur, er þeir fara á kostum upp
launastigann. Starfsmenn
einkabankanna líta á misræm-
ið í lífeyrissjóðsmálum milli
starfsmanna í ríkis- og einka-
bönkum sem stórmál, og
krefjast þess að fá sömu rétt-
indi og starfsmenn ríkisbank-
anna. En fleira er kaup en
krónan völt, góðan aðbúnað
og þægindi á vinnustað má
líka meta. Má þá benda á
frjálsan vinnutíma þar sem
hægt er að koma því við og
eins að starfsfólk festist ekki
á stólunum.
6 BANKABLAÐIÐ