Bankablaðið - 01.12.1979, Page 23
Hulda Ottesen,
bankaritari i Innheimti'deild Lands-
bankans. Hefur starfa’5 13 ár í banka:
Kröfugerð SÍB er í hóf stillt
cg hún er í heild sanngjörn.
Mikil nauðsyn er á hækkuð-
um grunnlaunum og von mín
ersú, að launabilið milli lægst
launaðra og hæst launaðra
minnki. Þá vænti ég þess að
3% launahækkunin sem koma
átti hinn 1.7. í sumar verði
greidd. Krafan um samning-
ana í gildi á enn við svo og
um verðlagsuppbót á öll laun.
Félagslegi þátturinn í kjara-
samningunum vegur þungt,
og ávinningur er að kröfunni
um 714 stundar vinnudag og
einnig að laugardagar teljist
ekki með í orlofi. Þá vil ég
nefna 20 daga leyfi fyrir karl
á fullum launum vegna barns-
burðar eiginkonu eða sambýl-
iskonu. Þó að þessi krafa hafi
farið fyrir brjóstið á mörgum
er hún réttmæt. Það hlýtur að
vera krafa bæði föður og
barns, að barnið njóti um-
hyggju beggja foreldra. Loks
vil ég nefna lífeyrismál, þótt
þau séu ekki í beinum tengsl-
um við kröfugerðina. Mjög
þýðingarmikið er, að lífeyris-
sjóðir bankamanna tryggi eft-
irlaunafólki mannsæmandi líf-
eyri, en mjög skortir á að þeir
geri það nú.
Gísli Jafetsson
vinnslustjóri hjá Reiknistofu bank-
anna. Hefur starfað hjá RB í 5 ár:
Það sem ég vænti fyrst og
fremst, var að viðsemjendur
okkar hefðu loks áttað sig á
þeirri þróun sem orðið hefur
á samtökum okkar undanfarin
2—3 ár og myndu haga vinnu-
brögðum sínum á annan hátt
í þessum samningaviðræðum
en í hinum fyrri. Þess sem ég
vænti annars í komandi kjara-
samningum er:
— að fullum kaupmætti launa
verði náð og tryggt að hon-
um verið haldið á samn-
ingstímanum.
— að laun í hverri starfsgrein
verði samkeppnishæf mið-
að við laun á hinum al-
menna vinnumarkaði.
— að verðlagsbætur verði
reiknaðar og greiddar
mánaðarlega.
— að náð verði til baka þeim
3% sem glötuðust með
Ólafslögunum.
Auk þess eru kröfurnar um,
að laugardagar teljist ekki til
orlofs, leiðréttingu vaktaálags,
námsleyfi eftir 5 ára starf, líf-
tryggingu allan sólarhringinn
og ákveðið framlag hvers
banka í orlofsheimilasjóði
mikilvægar og ég vænti mikils
af þeim.
BANKABLAÐIÐ 7