Bankablaðið - 01.12.1979, Page 25
Rannveig Þorvaldsdóttir,
SparisjóSi Kópavogs. Hefur starfað
7 ár í banka.
Það sem ég vil leggja mesta
áherslu á í komandi kjara-
samningum er ekki fyrst og
fremst bein krónutöluhækkun,
enda þótt talsverð launahækk-
un í krónum verði að koma
til, þar eð laun okkar banka-
starfsmanna hafa dregist tals-
vert aftur úr á síðustu árum,
heldur félagslega þætti og
fleira þar að lútandi.
1. Við ákvörðun starfsald-
urs verði tekið fullt tillit til
allra almennra skrifstofu-
starfa, en ekki eingöngu
starfa hjá ríki og sveitarfélagi
eins og verið hefur. Ég tel
einnig nauðsynlegt að skýr
ákvæði verði um hvernig nám
verði metið en um það eru
engin ákvæði í gömlu samn-
ingunum.
2. Að „13. mánuðurinn"
verði tekinn inn í kjarasamn-
inga.
3. Að krafist verði aukinna
starfsaldurshækkana, og
þreps hækkunar um hver ára-
mót upp í flokka 8.3. í stað
7.3. eins og verið hefur.
4. Að það verði fellt niður
að laugardagar teljist vinnu-
dagar við útreikning orlofs.
5. Að konur geti valið um
hvort þær taka sitt 3ja mán-
aða barnsburðarfrí sem frí
allan daginn eða hluta starfs
í lengri tíma. Ég tel alls ekki
tímabært, miðað við hinn
hæga framgang jafnréttis-
mála, að feður fái barnsburð-
arfrí.
6. Og að lokum tel ég það
nauðsynlegt að því verði kom-
ið inn í samninga að óheimilt
sé að breyta opnunartíma
banka og sparisjóða nema að
fengnu samþykki viðkomandi
starfsmannafélags.
BANKABLAÐIÐ
óskar bankamönnum
ýleðileýla jóla o<ý ^alsœls Izomattdi als
BANKABLAÐIÐ 9