Bankablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 26
31. ÞING SI3
31. þing SÍB var haldið dagana 5.-6. apríl
sl. Tala þingfulltrúa er nú föst, 65, og komu
þeir víða að af landinu frá 13 aðildarfélögum
sambandsins. Auk þess sátu þingið tveir full-
trúar frá Starfsmannafélagi Framkvæmdastofn-
unar ríkisins sem nýlega hefur fengið aðild að
sambandinu.
Auk þingfulltrúa og stjórnar SÍB sátu þing-
ið nokkrir erlendir gestir, Jan-Erik Lidström
frá Norræna bankamannasambandinu, Frits
P. Johannsen frá Norska bankamannasam-
bandinu, Per Tingman Möller frá Danska
sparisjóðasambandinu og Niels Johannessen
frá Danska bankamannasambandinu. Þá var
boðið til þingsins innlendum gestum frá heild-
arsamtökum launþega auk Bjarna G. Magn-
ússonar, Landsbanka íslands, fyrrverandi for-
manns SÍB. Fulltrúi ASÍ var Jóhannes Sig-
geirsson; Bandalags liáskólamanna, Valdimar
K. Jónsson; frá Bandalagi starfsmanna ríkis
og bæja kom Kristján Thorlacius og fulltrúi
Farmanna- og fiskimannasambandsins var Ing-
ólfur Stefánsson.
Skipting jhngfulltrúa milli félags var eftir-
farandi:
Landsbanki 23 fltr., Búnaðarbanki 8 fltr.,
Seðlabanki 4 fltr., Iðnaðarbanki 4 fltr., Sam-
vinnubanki 4 fltr., Verslunarbanki 3 fltr., Al-
þýðubanki 2 fltr., Útvegsbanki 9 fltr., Spsj.
Hafnarfj 2 fltr., Sparisj. Keflav. 2 fltr., Reikni
stofa bankanna 2 fltr., Spsj. Rvíkur 1 fltr.,
Spsj. Kópav. 1 fltr.
Aðalmál þingsins voru kjaramál, fyrst og
fremst frumvarp ríkisstjórnarinnar um kjara-
og efnahagsmál sem þá lá fyrir Alþingi og ger-
ir ráð fyrir lækkun umsaminna gTunnlauna
félagsmanna Sambands ísl. bankamanna. Þá
var mikið til umræðu einhliða ákvörðun
bankanna um breytingu á afgreiðslutíma bank-
anna, en sem kunnugt er var ekki haft samráð
við stjórn Sambands ísl. bankamanna eða ein-
stök starfsmannafélög áður en ákvörðun var
tekin og breytingin gekk í gildi að hluta. Hið
merkasta sem gerðist á jnnginu var Jió vafalaust
stofnun verkfallssjóðs Sambands ísl. banka-
manna, en samjrykkt var reglugerð fyrir sjóð-
inn.
Enginn stjórnarmanna úr aðalstjórn gaf kost
á sér til endurkjörs, en samkvæmt nýjum lög-
um SIB sitja nú 7 menn í aðalstjórn í stað 5
áður.
Ur stjórninni gengu: Sólon R. Sigurðsson,
formaður, Guðmundur Gíslason, Sveinbjöm
Hafliðason, Jón G. Bergmann, Sigurborg
Hjaltadóttir, en úr varastjórn gengu Erna Sig-
urðardóttir og Bent Bjarnason.
í stjórn voru kjörin:
Árni Sveinsson, Landsbanka íslands, for-
maður; 1. varaformaður Böðvar Magnússon,
Búnaðarbanka íslands; 2. varaformaður Sveinn
Sveinsson, Seðlabanka Islands; Jóhanna Otte-
sen, Landsbanka Islands; Hjörtur Zakaríasson,
Útvegsbanka íslands; Helgi Hólm, Verslunar-
banka íslands h.f.
Varastjórn:
Hinrik Greipsson, Útvegsbanka íslands;
Birgir Jónsson, Landsbanka íslands; Helgi I.
Sigurðsson, Samvinnubankanum; Þorleifur
Sigurðsson, Sparisjóði Hafnarfjarðar.
10 BANKABLAÐIÐ