Bankablaðið - 01.12.1979, Page 33
Fulltrúar Útvegsbankans á sambandsþingi.
ingum um niðurfellingu hennar gegn
bættri réttarstöðu. Stjórn SÍB féllst
hvorki á frestun né niðurfellingu
hækkunarinnar. Bent var á, að sanr-
bandið vildi láta reyna á þá réttar-
stöðu sem fyrir hendi væri og taldi að
SÍB gæti ekki samið upp á svipaðar
breytingar og BHM og BSRB voru að
íliuga, einkum vegna þess að réttar-
staða SÍB væri að mörgu leyti mtin
betri en þeirra. Þá var rætt um liugs-
anlega aðild að atvinnuleysistrygging-
um og htisbyggingum á félagslegum
grunni.
Þann 29. mars komu tilmæli frá
samninganefnd bankanna um að SÍB
féllist á frestun útborgunar þriggja
prósentanna annað hvort fram að
jringi eða jafn lengi og BHM. Tíminn
yrði síðan notaðir til samningaumleit-
ana um breytta réttarstöðu.
Fundur fullskipaðrar stjórnar og
formanna hafnaði frestun eftir miklar
umræður.
Opnunartímabreytingin
Stjórn SÍB var mjög gagnrýnin á
breytingu á opnunartíma banka og
sparisjóða og taldi að um væri að
ræða kjaraatriði í samningum, sem
bankarnir þyrftu að ræða við SÍB,
enda hefðu starfsmannafélögin vísað
málinu til sambandsins til forsvars
fyrir sína bönd.
Trúnaðarmenn
Þann 8. september 1977 náðist mik-
ilvægur áfangi varðandi réttarstöðu
trúnaðarmanna. Þá var undirritaður
sérstakur samningur um trúnaðar-
menn SÍB og aðildarfélaganna milli
samninganefndar bankanna og sam-
bandsins. Með þessum samningi fengu
trúnaðarmenn starfsmannafélaganna
bliðstæða réttarstöðu og almennt ger-
ist hjá öðrum stéttarfélögum.
Starfsemi trúnaðarmannanna er
einn mikilvægasti þáttur í starfi sam-
bandsins, enda er trúnaðarmaður
nauðsynlegur tengiliður milli félags-
manna annars vegar og SÍB og starfs-
mannafélagsins bins vegar. Starfsemi
þeirra og árvekni varðar jafnframt
beinlfnis kjör hins almenna banka-
manns.
Fræðslustarf
í desember 1977, eða skjótlega eftir
undirritun kjarasamningsins bófst
fræðslustarf sérstaklega ætlað trúnað-
armönnum sambandsins. í árslok 1977
og á árinu 1978 voru alls haldin 7 eins
dagsnámskeið fyrir trúnaðarmenn, þar
af 2 úti á landi, á Akureyri og Egils-
stöðum. Eitt þessara námskeiða var
sérstaklega fyrir trúnaðarmenn Félags
starfsmanna Landsbanka íslands skv.
beiðni félagsins.
Ráðstefnur
Dagana 14. og 15. mars 1978 efndi
SÍB til ráðstefnu uin vinnustaðinn,
aðbúnað, bollustubætti o.fl. Efni ráð-
stefnunnar skiptist í fjóra meginþætti
og voru í upphafi hennar haldnar
framsöguræður um hvern málaflokk.
Um 60 þátttakendur sóttu ráðstefn-
una. Að loknum framsöguerindum var
unnið í liópvinnu og voru niðurstöður
þess starfs einkar athyglisverðar.
Dagana 7. og 8. desember hélt SÍB
ráðstefnu um tækniþróun f bönkum.
Þátttakendur voru tæplega 50 talsins.
Fjallað var um tækniþróun í íslensk-
um bönkum, þó fyrst og fremst lölvu-
tækni og áhrif hennar á bankastörfin
yfirleitt, ásamt þeim vandamálum sem
upp hafa komið og kunna að koma.
Sérstaklega var rætt um félagsleg
áhrif og ný viðhorf í menntunarmál-
um. Að loknum framsöguerindum var
unnið i starfshópum og jafuframt var
farið í heimsókn í Reiknistofu hank-
anna og Rafreiknideild Landsbank-
ans.
Vornámskeið
Vornámskeið SÍB voru haldin 13.-
15. júní 1977 og 8.-10. júní 1978. Þau
voru með hefðbundnu sniði og voru
þátttakendur um 50 á hvoru nám-
skeiði.
Norrænt samstarf
Starf Norræna bankamannasam-
bandsins hefur verið mjög öflugt á
síðustu tveim árum. Sólon R. Sigurðs-
son sat f stjórn NBU fyrir hönd SÍB,
en varamaður hans var Gunnar Eydal.
Nokkrar fastar nefndir hafa verið
starfandi á vegum NBU: Nefnd fram-
kvæmdastjóra sambandanna, sem
Gunnar Eydal átti sæti í, fræðslunefnd
sem Benedikt Guðbjartsson, Lands-
banka íslands, sat í af hálfu SÍB og
tölfræðinefnd, sem Jón G. Bergmann
átti sæti í.
Ráðstefnur NBU
í september 1977 var haldin á veg-
um NBU ráðstefna í Gautaborg um
afskipti ríkisvaldsins af kjarasamning-
BANKABLAÐIÐ 17