Bankablaðið - 01.12.1979, Side 34

Bankablaðið - 01.12.1979, Side 34
um og ráðstcfna um atvinnulýðræði sem haldin var í Danmörku í nóvem- ber. SÍB átti fulltrúa á báðum þessum ráðstefnum. Þing NBU 1978 Þing NBU var lialdið í Reykjavík dagana 28. ágúst til 1. september 1978 og var það í fyrsta skipti, sem þing NBU er haldið hér á landi. Þingfull- trúar voru rúmlega 70 frá öllum Norð- urlandaþjóðunum. (Áður hefur ítar- lega verið sagt frá þinginu í Banka- blaðinu). Námskeið erlendls SÍB hefur ýmiss konar beina sam- vinnu við bankamannasamböndin annars staðar á Norðurlöndum, með eða án milligöngu NBU. M. a. berast SÍB öðru hvcrju boð um að senda fulltrúa á trúnaðarmannanámskeið á vegum sambandanna. Þrjú slik boð hafa verið þegin á starfstímabiii stjórnarinnar. Þegar litið er yfir norrænt samstarf sfðustu 2 ár verður niðurstaðan sú, að það hefur verið til mikils gagns fyrir SÍB. Þannig getur SlB fylgst með þró- un hinna ýmsu mála annars staðar á Norðurlöndum og vandamálin eru í aðalatriðum sameiginleg. Á þennan hátt hefur sambandið á ýmsan máta mótað kröfur sinar gagnvart viðsemj- andanum, tekið upp nýmæli frá hin- um Norðurlandasamböndunum og haft aðstöðu til að fylgjast með þróun mála þar. Verkfallssjóður Norræna sambandsins cr SÍB einnig sterkur bakhjarl ef til verkfalla kemur. Minna má á, að á þeim ráðstefnum sem SÍB liéfur haldið um hina ýmsu mála- flokka hefur í miklum mæli verið stuðst við gögn og reynslu frá hinum Norðurlöndunum. Núverandi árgjald SÍB til Norræna bankamannasam- bandsins er 5 kr. sænskar fyrir hvern félagsmann SÍB, en NBU ber kostnað af ferðum vegna funda í stjórn og fastanefndum innan NBU og sam- kvæmt nýjum reglum greiðir NBU ennfremur uppihald fundarmanna. Aukaþing SÍB 19. apríl 1978 var haldið aukaþing SÍB. Aðalmál þingsins var að fjalla um lagabreytingar sambandsins. Ný lög fyrir sambandið voru samþykkt á þinginu og eru þau mjög ítarleg, alls 36 greinar. Veigamesta breytingin felst í kaflanum um samnings- og verkfalls- réttiim. (Nýju lögin voru birt í Banka- blaðinu, 2. tbl. 1978. Þau hafa auk þess verið sérprentuð og scnd trún- aðarmönnum og starfsmannafélögum). Útgáfustarfsemi Stjórn SÍB setti sér í upphafi það markmið, að stórefla útgáfu Banka- blaðsins, en það hafði komið óreglu- lega út árið á undan. Á árinu 1977 komu út 3 tölublöð af Bankalilaðinu og 4 tölublöð á árinu 1978. Sambandstíðindi komu út 25 sinn- um árið 1977 cn 26 sinnum árið 1978. Af lausum stöðum komu út 35 árið 1977 og 26 árið 1978. Af annarri útgáfustarfsemi má helst nefna gögn sem dreift hefur verið til trúnaðarmanna SÍB og formanna starfsmannafélaga. Bankamannaskólinn Starfsemi Bankamannaskólans var framan af með svipuðum hætti og undanfarin ár. Hinn 1. nóvember 1977 var hins vegar skrifað undir nýjan samning um starfsemi Bankamanna- skólans og vorið 1978 var ráðinn nýr skólastjóri að skólanum, Þorsteinn Magnússon, sem áður var kennari við Verslunarskólann. í ráði er að stór- efla starfsemi skólans og hefur þar vcrið unnið mikið undirbúningsstarf. Benedikt Guðbjartsson, Landsbanka fslands, hefur verið fuiltrúi SÍB í skólanefnd Bankamannaskólans und- anfarin 2 ár og tók hann við því starfi af Helga Steingrímssyni, Landsbanka íslands. Mál fyrir kjaranefnd í samræmi við 14. grein samkomu- lags SÍB og bankanna um kjarasamn- inga hcfur verið starfandi kjaranefnd sem fjallað hefur um ágreiningsmál vegna kjarasamninga. Kjaranefnd hef- ur haldið 15 fundi og fjallað um ágreiningsmál af ýmsu tagi, auk þess sem rætt hefur verið um ýmsar spum- ingar varðandi túlkun kjarasamninga án þcss að um formlcg ágreiningsmál hafi verið að ræða. (Þessara mála hef- ur vcrið getið f Bankablaðinu). LokaorS Skýrsla þessi gefur ekki fullkomna mynd af starfi SÍB síðastliðin 2 ár. Til þess þyrfti liún að vera bæði lengri og ftarlegri. Stjórnin vill að lokum þakka gott samstarf við stjórnarmenn starfsmannafélaganna, trúnaðarmenn, almenna félagsmenn og öllum jieim sem hafa lagt hönd á plóginn á liðnu starfstímabili. Það er von fráfarandi stjórnar að þetta jiing verði árangurs- ríkt í störfum og niarki sambandinu hcillaríka stefnu næstu 2 árin og um nána framtíð. Fulltrúar Samvinnubankans á sambandsþingi. 18 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.