Bankablaðið - 01.12.1979, Side 35

Bankablaðið - 01.12.1979, Side 35
ÁLYKTANIR ÞINGSINS Alyktun um efnahagsaðgerSir Þing SÍB haldið 5. april 1979 raót- mælir harðlega þess háttar íhlutun Alþingis í frjálsan og lögvarinn samn- ingsrétt, sem fram kemur í frumvarpi til laga um stjórn efnahagsmála o.fl. Fyrirhuguð eignaupptaka og kjara- skerðing á sér enga liliðstæðu og bygg- ist ekki á rökstuðningi þeim sem fram kemur í frumvarpinu, þar sem grunnkaupshækkun til bankamanna mun ekki hækka þjónustukostnað við- skiptavina bankanna. Þingið lítur svo á, að lögfesting skerðingarinnar á grunnlaunum einn- ar fámennrar stéttar launþega eins og bankamanna sé brot á ákvæðum stjórnarskrárinnar um vernd eigna- réttarins. Bankamenn áskilja sér rétt til að lcita úrskurðar dómstóla og jafnframt að beita mætti samtakanna gegn slíkum ólögum. Þjálfunar- og fræðslumál Það er stefna SÍB að stuðla að menntun bankamanna með það fyrir augum að allir starfsmenn bankanna eigi kost á fræðslu á sem flestum svið- um bankastarfseminnar. Hver starfsmaður, sem byrjar starf í banka, skal eiga þess kost að stunda almennt undirbúnings- og kynningar- nám er varðar flestar greinar starfs- ins — og byrjendafræðslu — og hafa rétt til að taka þátt í sérnámi síðar, sem nauðsynlegt telst til að stunda vandasöm bankastörf. Með vandaðri byrjendafræðslu skal stefnt að auknu áliti og virðingu fyrir bankastarfinu, sem leiðir til jress, að bestu og hæfustu starfsmenn velji sér bankastarfið sem ævistarf. Fjölbreytt framhaldsfræðsla, sem tekur við að byrjendafræðslu lokinni, skal standa öllum bankamönnum op- in. SÍB telur það mikilvægt, að stjórn- endur bankanna og fulltrúar banka- starfsmanna vinni sameiginlega að mótun stefnu í fræðslumálum. Stefnan skal fyrst og fremst byggja á reynslu af Bankamannaskólanum og miðast við íslenskar aðstæður. Eðlileg fram- þróun er æskilcgri en stökkbreyting í átt að erlendri fyrirmynd, en engu að síður má margt læra af reynslu frænd- jrjóða okkar í þessum efnum. Stefna skal að því að öll bókleg fræðsla bankamanna fari fram á veg- um Bankamannaskólans, sem stjórnað er sameiginlega af fulltrúum starfs- manna og vinnuveitenda. Verkleg fræðsla verði skipulögð af Banka- mannaskólanum, en framkvæmd á hverjum vinnustað fyrir sig eða í æf- ingastöð Bankamannaskólans. Markmið bankafræðslunnar ByrjendafrœOslan á að kynna og gefa gott yfirlit yfir öll lielstu störf scm unnin eru í banka. Að kynna auk þess sögu og stöðu bankastarfseminn- ar. Fræðsla þessi skal ná tii allra þcirra sem ráðnir eru til starfa í bönk- um. Framhaldsfrœðslan á að skapa starfs- mönnum möguleika á staðgóðri og vandaðri þekkingu á hinum einstöku sérgreindu sviðum bankastarfseminn- ar, bæði með frumfræðslu og endur- menntun. Sérstaka áherslu ætti að leggja á fræðslu um nýjungar og tækniþróun í bönkum. Námshvetjandi launakerfi er eitt af undirstöðum þess að almenn þátttaka verði í starfsemi Bankamannaskólans, auk forgangs til ábyrgðarmciri starfa eftir að námi er lokið. Byrjenda- og framhaldsfræðsla skulu fara fram í vinnutíma starfs- manna. Um starf og skipulag Bankamannaskólans Þing SlB fagnar þeirri þróun sem átt hefur sér stað í rekstri Banka- mannaskólans síðustu starfsár. Ráðn- ing skólastjóra hefur ótvírætt í för með sér eflingu skólans og vænta bankamenn mikils af skólanum f fram- tíðinni. Þingið leggur áherslu á að skólinn sé sjálfseignarstofnun, stjórnunarlega óháður framlagi hverrar lánastofnunar og stjórnist af kosinni stjórn þeirra sem aðild eiga að skólanum. Æskileg stjórnaraðild sé þannig, að helmingur stjórnarmanna sé kosinn af vinnuveitendum og hinn helming urinn kosinn af þingi SÍB. Kjörtíma- bilið sé 2 ár. Formaður og varaformað- ur verði til skiptis frá starfsmönnum og vinnuveitendum. Þá telur þingið rétt, að hið fyrsta verði komið á fót samstarfshópi, skipuðum þrem fulltrúum frá vinnu- veitendum og þrem frá SÍB, ásamt skólastjóranum, sem vinni að endur- skoðun á samningi um skipulag Bankamannaskólans. Skal verkefni starfshópsins beinast að nánari út- færslu þess samstarfs sem á sér stað um skólann, skilgreina tilgang og markmið, og leggja á ráðin um fram- tíðarþróun hans. Um áhrif náms á kjör Það er stefna SÍB, að starfsmenn skuli njóta í launum sérþekkingar sem BANKABLAÐIÐ 19

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.