Bankablaðið - 01.12.1979, Page 42
tækniþróun
Dagana 7. og 8. desember 1978 var haldin
á Hótel Loftleiðum ráðstefna á vegum SIB um
tækniþróun í bönkum. Var þetta í fyrsta sinn
sem launþegasamtök hérlendis hafa tekið mál
þessi sérstaklega fyrir með þessum hætti, en
sem kunnugt er hefur tækniþróun og tölvu-
notkun farið ört vaxandi í íslenskum bönkum
á síðustu árum og má búast við enn stórstígari
skrefum í þeim efnum á næstunni.
Þátttakendur voru 45 að tölu frá flestum
bönkum, auk þess sem starfsmannastjórum
bankanna og stjórn Bankamannaskólans hafði
verið boðið að sitja ráðstefnuna.
Eftir setningu formanns SÍB Sólons R. Sig-
urðssonar fluttu framsögrunenn erindi sín.
Þórður B. Sigurðsson, forstöðumaður Reikni-
stofu bankanna og Helgi Steingrímsson, for-
stöðumaður hagræðingardeildar Landsbank-
ans, ræddu um tækniþróun í íslenskum bönk-
um, bæði sögulega og hvað í vændum er. Þor-
steinn Magnússon, skólastjóri Bankamanna-
skólans ræddi um menntun bankamanna og
loks gerði Ib Hansen, fulltrúi frá Danska
bankamannasambandinu grein fyrir þróun
þessara mála í Danmörku og afstöðu Danska
bankamannasambandsins til hennar.
Gert var ráð fyrir að framkvæmdastjóri
Norræna bankamannasambandsins, Jan-Erik
Lidström, gerði grein fyrir viðhorfum sam-
bandsins og þróuninni á öðrum Norðurlönd-
um, en af persónulegum ástæðum gat hann
ekki setið ráðstefnuna. Frá honum barst hins
vegar skeyti þar sem hann fyrir hönd Norræna
bankamannasambandsins fagnar því frum-
kvæði SÍB að taka mál þessi til umræðu og
óskaði ráðstefnunni alls velfarnaðar.
Að loknum framsöguerindum var unnið í
starfshópum og loks sátu framsögumenn fyrir
svörum og svöruðu spumingum þátttakenda.
Ráðstefnu þessari var ekki ætlað að móta
stefnu SÍB varðandi tölvuþróun, en hins vegar
fyrst og fremst það hlutverk að kynna mál Jaessi
og fá umræður þar um.
Frá ráðstefnu SÍB um tcekniþróiin.
26 BANKABLAÐIÐ