Bankablaðið - 01.12.1979, Side 45

Bankablaðið - 01.12.1979, Side 45
Helgi H. Steingrimsson, torstöðumaður Hagræðingardeildar L.f, Ekki til baka snúið Helgi H. Steingrímsson, forstöðumaður Hagræðingardeildar Landsbankans hélt erindi á ráðstefnunni, sem hann nefndi Tækniþróun í íslenzkum bönkum. Þar vék hann fyrst að þeim skoðunum, sem verið hafa innan bank- anna á mikilvægi tölvuvinnslu almennt, þar sem sumir teldu óþarflega mikla áherzlu hafa verið lagða á þann þátt, þar sem svo aðrir teldu að ekki hafi nóg miðað í þeim efnum á liðnum árum, og taldi Helgi að sá hópur væri í miklum meirihluta. Ennfremur ræddi hann um þær skiptu skoðanir, sem fram hafa komið innan nokkurra banka um það, hvort farsælla hafi verið að stefna alfarið að sameiginlegri tölvuvinnslu bankanna fremur en að starf- rækja áfram og efla eigin tölvudeildir, og láta samvinnuna aðeins ná til vélrænna skjala- skipta tékka. Mikilvægast væri þó, að í umræð- um um þessi mál hafi menn ekki greint á um það, hvert væri höfuðmarkmiðið, en það væri að sjálfsögðu það, að sem fyrst bæri að taka til tölvuvinnslu öll verkefni, sem hagkvæmt þætti. Síðan rakti Helgi sögulega þróun vinnslu hinna ýmsu bankaverkefna frá stofnun Landsbankans fram til þess tíma er tölvu- vinnsla hefst, síðan þróun töluvinnslu Lands- bankans, kosti hennar og neikvæð áhrif, og loks ræddi hann mögulega þróun mála í fram- tíðinni. í þessum hluta ræðu sinnar rakti Helgi þró- unina, allt frá tímum pennastanga og bleks frá því er bankinn tók til starfa árið 1886, til síðasta árs, að teknar eru í notkun örskyggnur (microfiche) með tilheyrandi tækjabúnaði. Fram kom að bankinn hefði tekið ritvélar og samlagningarvélar í notkun árið 1905, NCR o o Helgi H. Steingrimsson, forstöðumaður. bókhaldsvélar af gerðinni class 2000 árið 1934, og margföldunarvélar árið eftir. Gjaldkeravél- ar af gerðinni NCR 41 eru síðan teknar í notkun árið 1958, og árið 1961 koma til sög unnar IBM 632 skýrslugerðarvélar hjá Veð- deild bankans. Kienzle bókhaldsvélar með vaxtaútreikningi koma árið 1962, og IBM tölva af gerðinni 360/20 fær bankinn síðan ár- ið 1967. Árið 1975 kemur IBM 370/135 tölva BANKABLAÐIÐ 29

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.