Bankablaðið - 01.12.1979, Page 47

Bankablaðið - 01.12.1979, Page 47
rangrar bókhaldsmeðferðar hafa minnkað vernlega, enda allt eftirlit orðið auðveldara. Þá nefndi hann aukna möguleika á hagkvæm- ari endurskoðun, vaxta- og gjaldskrárbreyting- ar liefðu orðið auðveldari, og vinnubrögð innlánsstofnana almennt verið samræmd. Ennfremur nefndi Helgi í þessu sambandi, að með tölvuvinnslu væri framkvæmd nýrra viðfangselna gerð auðveldari viðfangs með skömmum fyrirvara, og vinnsla nmfangsmik- illa skyndiverkefna, svo sem vaxtabreytinga og áramótauppgjörs gengi mun hraðar og ein- faldar fyrir sig. Hann kvað tölvuvinnsluna gefa möguleika á nýtingu sömu upplýsinga á margvíslegan liátt, t.d. með hagnýtingu þjóðskrár. Ymis úr- vinnslugögn væru Iireinlegri en áður, svo sem útskriftir, tilkynningar, skilagreinar og fleira, auk þess sem mögulegt væri að veita upplýs- ingar, sem ekki var unnt áður nema með mikl- um tilkostnaði. Þá kvað hann tölvuvæðinguna auðvelda alla stjórnun, og dregið hefði úr kostnaði við mannahald, án þess að það hefði leitt til upp- sagna. Hann gat þess að reynslan hefði sýnt, að aukning færslumagns hefði ekki leitt til fjölg- unar starfsfólks auk þess sem vinnutími hefði styttst. Neilwœð dhrif tölvuvinnslu. í þeim hluta erindis síns, sem fjallaði um neikvæðu Iiliðarnar á tölvutækninni, nefndi Helgi eftirfarandi atriði: Kostnaðurinn væri talinn hár, en í jiví sam- bandi gleymdist oft að meta ávinninginn, sem væri verulegur sparnaður á öðrum sviðum. Fræðslu væri verulega ábótavant, sem væri jæim mun alvarlegra mál, þegar böfð væru í liuga hin öru mannaskipti í hinum almennu bankastörfum, tölvuvinnsla yrði sífellt flókn- ari, og nauðsynlegar handbækur oft takmark- aðar og á „illskiljanlegu tölvumáli". Auk þessa væri Jrað staðreynd, að viðskiptamenn væru íbaldssamir á breytingar, oft vegna ónógrar kynningar á gagnsemi þeirra. Þá befði komið í ljós, að starfsmenn væru oft mótfallnir nauð- synlegum breytingum, hreinlega óttuðust áhrif þeirra á rótgróið starf, sem væri afar eðli- legt, en orsakir þessa mætti oft rekja til þess, að menn gegndu oft of lengi sama starfi, og kæmust þannig hjá breytingum, er slíku fylgdi. Loks yrðu starfsmenn háðir vélunum, hættu að kunna undirstöðuatriði, sem tölvan ynni eft- ir, auk þess sem tölvuvinnslunni fylgdu lýjandi og einhæf störf eins og gagnaskráning. Framtiðarlpróun i tæknivœðingu í lok erindisins vék Helgi H. Steingrímsson að framtíðinni. Hann taldi augljóst, að ekki yrði til baka snúið í tæknivæðingunni. ,,Mek- aniskar“ bókunarvélar væru að hverfa af mark- aðnum, og nú væri stefnt að því að taka í notk- un afgreiðsluvélar tengdum tölvu. Gagna- skráning myndi fara fram í deildum um leið og afgreiðslan ætti sér stað. Loks nefndi hann mögulega tölvusamvinnu í milliríkjaviðskipt- um, og greindi stuttlega frá SWIFT greiðslu- kerfinu. BANKABLAÐIÐ 31

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.