Bankablaðið - 01.12.1979, Síða 48
Ib Hansen, ritari DBLi
Tölvan er pölitískt tækí
Ib Hansen, ritari Danska bankamannasam-
bandsins, DBL, var gestur ráðstefnu SÍB um
tækniþróun í íslenskum bönkum. í erindi sínu
fjallaði hann um áhrif tölvunotkunarinnar á
dönskum vinnumarkaði og nauðsyn Jaess að
móta ákveðna „tölvu-pólitík“, sem gæti stjórn-
að þróuninni.
Síðan sagði Ib Hansen: ,,Á síðustu árum
liafa ýmsir rætt mikið um nauðsyn þess að
hafa hemil á þróuninni, einkum tölvuþróun-
inni, meðan á efnahagskre]Dpunni stendur.
Einkum hafa ýmis samtök launamanna rætt
Jressi mál, Jrar sem sú staðreynd blasir við, að
ný tölvukerfi hafa valdið miklu atvinnuleysi.
Nýlega hafa tveir danskir stjórnmálaflokkar
lagt til, að þau fyrirtæki, sem ráða fleiri starfs-
menn í stað sjálfvirkrar tækniþróunar, skuli
veitt skattfríðindi.
Átökin milli danska prentarasambandsins og
Det Berlinske Hus, er oft tekið sem dæmi um
livaða afleiðingar tölvuvæðingin getur haft í
för með sér, þegar í kjölfar hennar kemur
hrikalegt atvinnuleysi heilla starfsstétta.
Aðrar starfsgxeinar hafa svipaða sögu að
segja, t.d. bankar og tryggingafyrirtæki. Þrátt
fyrir að starfsliði danskra banka hafi fjölgað,
hefur bankanemum fækkað um 59%, á árabil-
inu frá 1972 til 1978. Sérmenntuðu starfsliði
hefur fjölgað um 29%, en fjöldi ófaglærðra
bankastarfsmanna hefur aukist mest, eða um
94%. Ofaglærðir bankamenn fá laun sem eru
meira en 20% lægri en faglærðra.
Útlit er fyrir, að enn megi fækka banka-
starfsmönnum í Danmörku um 1.000 til 1.500
á næstu árum með aukinni tækni. Sparnaður-
inn er metinn á 150 milljónir danskra króna,
Ib Hansen,
ritari DBL.
en síðan má draga frá þessari upphæð væntan-
legar atvinnuleysisbætur til atvinnulausra
bankamanna." ,,Og hver er Jrað svo sem tekur
til sín væntanlegan mismun eftir vinnuhagræð-
ingu sem j3essa?“ spyr Ib Hansen.
Ib Hansen sagði, að tölvuvæðingu væri ætl-
að að auka vinnuhagræðingu. Á krepputímum
væri hins vegar engin þörf á slíku. Vandamál
vegna atvinnuleysis, endurmenntunar og fram-
færsluskyldu lenti á J^jóðfélagsheildinni. Ef
skólaganga yrði jafnlöng og vinnuvikan jafn
margar stundir eftir 10 til 15 ár og hún er nú,
myndi fjórði til fimmti hver vinnufær maður
í Danmörku fá atvinnu, héldi þróunin áfram.
Ib Hansen undirstrikaði mikilvægi þess, að
tryggt yrði að tölvuvæðingin yrði nýtt til hags-
bóta fyrir Jjjóðfélagið í heild. Þá yrði að koma
á umfangsmiklu eftirliti og nákvæmri úttekt á
Jjeim hagsbótum og göllum, sem sjálfvirkn-
inni er samfara.
32 BANKABLAÐIÐ