Bankablaðið - 01.12.1979, Síða 53
STATISTIKNEFND NBU
Sveinn Sveinsson, 2. varafor-
maður SIB tók i sumar við af
Jóni Bergmann, sem fulltrúi
sambandsins i staJistik 7>efnd
Norrœna bankamannasam-
bandsins. Hann sat fyrsta fund
sinn i nefndinni 22. til 23. ág-
úst i Helsinki. Sveinn segir
hér frá þvi helsta sem er á döf-
inni hjá statistik nefndinni.
Fundurinn var að þessu
sinni haJdinn í aðalstöðvum
finnska bankamannasam-
bandsins í Helsinki dagana
22.-23. ágúst s.l.
I upphafi fundarins gerðu
fulltrúar grein fyrir því helsta,
sem var á döfinni hjá sam-
böndunum svo sem nýjum
tölvuskráningaraðferðum í
bóklialdi og félagatali, áhrif
um stöðvunar verðhækkana á
afkomu bankamanna, opnun-
artíma o.fl. almennum þátt-
um.
Þá urðu ítarlegar umræður
um launakerfi sambandsins
svo sem um launahækkanir,
launajafnrétti kynjanna,
lægstu og hæstu laun, launa-
mismun o.fl. Voru í þessu sam-
bandi lagðar fram margs kon-
ar tölur og útreikningar og
kom ]}ar m.a. fram, að aldurs-
launahækkanir væru mun
Sveinn Sveinsson
minni hjá bankamönnum en
öðrum verkalýðsfélögum. Enn
fremur að ábyrgðastöður inn-
an bankanna væru tiltölulega
illa launaðar miðað við laun
hins óbreytta bankamanns.
í framhaldi af unrræðum
um launamálin, var tekin fyr-
ir beiðni stjórnar NBU um
tillögur að umræðuefni um
launamál á NBU-þingi, sem
haldið verður í Helsinki í
september á næsta ári. Nefnd-
in gerði tillögur um fjögur
umræðuefni, sem ætlað er að
öll verði rædd á einum degi,
frá því snemma að morgni og
langt fram á kvöld.
Á dagskrá fundarins var til-
laga sænska fulltrúans um at-
hugun á lífeyris- og trygg-
ingakerfi bankamanna og
lagði hann fram uppkast að
spurningaformi, sem var rætt
og síðan fullunnið. Er gert
ráð fyrir að svör við spurn-
ingum þessum verði tilbúin
frá hverju sambandi fyrir
næsta fund nefndarinnar.
Þá var farið yfir árlega
skýrslu nefndarinnar um
launaþróun á árinu 1978 og
hún fullgerð.
Að síðustu var rædd beiðni
ritstjóra að samnorrænu
bankariti um tillögur að efni
í ritið. Nefndin gerði tillögur
um að tekin yrðu viðtöl við
hjón í hverju landanna þar
sem bæði væru bankastarfs-
menn, væru á aldrinum 30-35
ára, byggju í eigin húsi, ættu
tvö böm. í viðtölum þessum
yrði reynt að lýsa lífsstíl fólks-
ins svo sem innkomu og
eyðslu, hvernig sumarleyfum
væri varið o.s.frv.
Næsti fundir nefndarinnar
var ákveðinn í Reykjavík 27.-
28. maí n.k.
BANKABLAÐIÐ 37