Bankablaðið - 01.12.1979, Page 59
FRÁ BANKAMANNASKÖLANUM
Síðasta skólaár
Á síðasta skólaári, þ. e. 1978—1979, vorn
haldin tvenn nýliðanámskeið, með þrem hóp-
um, alls um 80 manns, sem er töluvert meiri
fjöldi en verið hefur undanfarin ár. Námsefn-
inu hefur verið breytt nokkuð, en skipulaginu
hefur verið gjörbreytt, þannig að námskeiðin
eru einfaldari og rökvissari í framkvæmd.
Nokkur sérnámskeið voru baldin á síðasta
vetri, en það eru stutt en hagnýt námskeið um
afmörkuð tæknileg atriði í bankastörfum, 20
til 30 stundir að lengd. Tvö tölvunámskeið
voru haldin, þar sem tölvuverkefni Reikni-
stofu bankanna voru kynnt (alls um 60 manns).
Haldið var námskeið fyrir ritara (20 manns)
og loks var haldið námskeið í Stjórnun II (20
manns). Um 100 manns tóku því jrátt í sér-
námskeiðunum.
Einn fræðslu- og umræðufundur var liald-
inn, og var hann um „vaxtamálin og viðskipta-
bankana", þar sem Árni Vihjálmsson prófessor
og Guðmundur K. Magnússon rektor, voru
frummælendur ásamt Vali Valssyni aðstoðar-
bankastjóra. Fundinn sóttu um 70 manns.
Á þessu skólaári tóku því um 250 manns
Jrátt í störfum skólans, og um 40 manns önn-
uðust jrar kennslu eða fyrirlestra. Þetta er
helmingsaukning miðað við fyrri ár.
Dúxar nýliðanámskeiðsins i vor ásaml
skólastjóra. Taldir frá vinstri: Hail-
jriður M. Pálsdóttir og Rikharður
Hrafnkelsson, becði með 9.2 i einkunn,
Jóna Th. Yiðarsdóttir, með 93, og
skólastjórinn Þorsteinn Magmísson.
BANKABLAÐIÐ 43