Bankablaðið - 01.12.1979, Page 65

Bankablaðið - 01.12.1979, Page 65
til keppni við kollega þar. Fyr- ir þá ferð æfði liðið mjög vel undir handleiðslu hins kunna þjálfara Karls Benediktsson- ar. Það var því harðsnúið lið, sem hélt til Osló hinn 4. maí síðastliðinn. Leiknir voru tveir leikir við Bergen Bank, sem annaðist móttökur í Noregi. Unnust báðir leikirnir með yfirburð- um. Síðan var haldið til Kaup- mannahafnar þar sem leiknir voru tveir leikir. Við Den Danske Bank, sem annaðist móttökurog við Privatbanken. Lið Den Danske Bank var talið mjög sterkt, enda leikur það í 1. deild í firmakeppninni í Danmörku, en hún er í þrem deildum. Lið Privatbankans var ekki talið eins sterkt, enda lék það í 2. deild. Báðir leik- irnir fóru fram sama kvöldið með stuttu millibili. Það var því ætlunin, að við lékum við sterkara liðið fyrst, en þegar til kom var það veikara liðið, þ.e. Privatþanken, sem mætti fyrst til leiks. Þann leik sigraði Landsbankinn með yfirburð- um. Síðan var leikið við Den Danske Bank og var sá leikur í járnum lengi vel, en að lok- um seig Landsbankinn fram úr og sigraði örugglega með 5 marka mun og voru frændur vorir Danir ekki áberandi ánægðir með þau úrslit. Móttökur Norðmanna og Dana voru allar til mikillar fyr- irmyndar og heppnaðist ferð- in í alla staði mjög vel. Að öðru leyti hefur íþrótta- iðkun í þankanum verið með hefðbundnum hætti á árinu. i sumar var fengin aðstaða til íþróttaiðkunar á íþróttasvæði Þróttar við Sæviðarsund og þeir, sem höfðu áhuga á golf- iðkun fengu aðstöðu gegn lækkuðu gjaldi hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Nú er vetrarstarfið hafið og eru íþróttaæfingar tvisvar í viku í íþróttahúsi Seltjarnar- ness. iþróttanefnd hvetur ein- dregið alla starfsmenn Lands- bankans til þess að notfæra sér þessa aðstöðu til hollrar og góðrar hreyfingar, svo og hvetur nefndin alla banka- menn til aukinnar íþróttaiðk- unar. Frá skemmtinefnd F.S.L.Í. Mikil gróska hefur verið í félagslífi s.l. ár og þátttaka góð í þeim dagskrám, sem fram hafa farið. Er þar fyrst til að nefna, að margir brugðu sér í betri skóna og fóru í fjögurra kvölda disco-danskennslu er fórfram að Laugavegi 77, í sal starfsmannafélagsins. Snyrtivörukynning var hald- in í matsal Aðalbanka, og var endurtekin þrívegis, enda áhugi kvenna mikill, en eng- inn karlmaður lét sjá sig. Að kveldi 24. júní var farið í Jónsmessunæturferð með Útivist suður á Höskuldarvelli og gengið á Oddafell um lág- nættið. Árleg sumarferð var farin 6. júlí og haldið í Þórs- mörkina, sem er alltaf jafn vinsæl. Lagt var upp frá Laugavegi 77 á föstudags- kveldi í tveim rútum og kom- ið til baka seinnipart sunnu- dags eftir fjöruga ferð og hag- stætt veður. Vor- og haustgleði voru haldnar að venju. Vorgleðin var haldin að Laugavegi 77, var húsfyllir og mikið fjör. Haustgleðin var haldin í ný- innréttuðum matsal Aðal- banka og þurfti að endurtaka hana vegna mikillar aðsóknar og var fullt hús í bæði skiptin og mikil og góð stemmning í mannskapnum. Og ekki brást matargerðarlistin frekar en endranær hjá kokkunum okk- ar þeim Sigurjóni og Halldóri, og eiga þeir mikið hrós skilið fyrir framlag til þessara skemmtana. Leikhúsferð var fyrsta nóv. Var farið í Iðnó að sjá leikrit- ið ,,Er þetta ekki mitt líf“, og fóru um 100 manns að sjá það. 25. nóv. er áætlað að halda síðdegisskemmtun í matsal Aðalbanka og bjóða þangað sérstaklega eftirlaunaþegum Eftirl.sjóðs Landsbanka og Seðlabanka. Verður þar ýmis- legt til skemmtunar. 30. nóv. verður árleg jóla- gleði haldin að Hótel Sögu, og jólatrésskemmtanir fyrir börn starfsmanna verða haldnar að venju um hátíðarnar. Frá Skákfélagi Landsbankans Starfsemi Skákfélags Lands- bankans hófst eftir áramótin með hraðskákkeppni við læknalið Landsspítalans. Læknalið þetta hefur undan- farin ár vakið athygli fyrir BANKABLAÐIÐ 49

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.