Bankablaðið - 01.12.1979, Page 68
Guðrún Svavarsdóttir,
deildarstjóri, Nesveg, Seltjn.,
útibú.
Súsanna Sigurðardóttir,
fulltrúi, Álfheimar útibú.
Frá Starfsmannafélagi
Búnaöarbanka íslands
Aðalfundur Starfsmannafé-
lags Búnaðarbanka íslands
var haldinn í Aðalbanka 19.
febr. 1979. Fundarstjóri var
Halldór Ólafsson og fundarrit-
ari Gísli Helgason. Skýrslur
voru fluttar og reikningar fé-
lagsins lesnir upp.
Böðvar Magnússon, sem
gegnt hefurformannsstöðu fé-
lagsins undanfarin ár gaf ekki
kost á sér til endurkjörs, en í
hans stað var kosin Dóra
Ingvarsdóttir, starfsmaður í
Skipulagsd. bankans. Auk
Böðvars hættu í stjórn Ólöf
Magnúsdóttir og Gísli Helga-
son, en í þeirra stað voru
kosnar þær Guðný Ottesen og
Anna María Bragadóttir.
Fljótlega eftir aðalfund fé-
lagsins kom hin nýkjörna
stjórn saman og skipti með
sér verkum. Stjórnin er þannig
skipuð:
Dóra Ingvarsdóttir, formaður,
Theodóra Thoroddsen, var-
formaður,
Guðný Ottesen gjaldkeri,
Jóhann B. Garðarsson ritari,
Anna M. Bragadóttir, meðstj.
Fyrsta meiriháttar málið,
sem stjórnin þurfti að glíma
við, var svokallað opnunar-
mál, þar sem fyrirhugað var
að breyta opnunartíma bank-
anna 1. apríl og 1. sept. 1979.
Haldinn var fjölmennur fé-
lagsfundur vegna máls þessa
14. marz, þar sem fundurinn
ályktaði um málið. i ályktun
fundarins kom meðal annars
fram að Starfsmannafélag
Búnaðarbankans harmaði hve
tillögur þessar voru lagðar
fram með stuttum fyrirvara og
hve lítið samráð hafði verið
haft við stjórn félagsins og
starfsfólk bankans. Breyting
þessi á opnunartíma bank-
anna hefur gengið rólega og
vel fyrir sig í Búnaðarbankan-
um og erfólk smám saman að
aðlaga sig breyttum af-
greiðslutíma.
Árshátíð félagsins var hald-
in 24. marz að Hótel Borg og
sóttu hana yfir 300 manns.
Starfsmenn úr nær öllum úti-
búum bankans sóttu hátíð
þessa og var sérstaklega
ánægjulegt hve margir utan
af landsbyggðinni sáu sér
fært að koma.
Félaginu barst höfðingleg
gjöf frá stjórn bankans í til-
efni af 50 ára starfsafmæli
bankans á næsta ári. Gjöf
þessi voru tvö sumarhús upp-
komin á þeim stöðum sem fé-
lagið vildi reisa þá, auk alls
innbús. Einnig fylgdi gjafa-
bréfi þessu 5 milj. kr. í náms-
sjóð félagsins, sem hefur und-
anfarin ár átt í erfiðleikum við
að standa við skuldbindingar
sínar. Stjórn félagsins þakk-
ar stjórn bankans þessa höfð-
inglegu gjöf, sem mun koma
sér vel í framtíðinni, þar sem
félagsmenn geta notið hvíldar
og hressingar í sumarhúsum
þessum.
Hús þessi voru reist í sum-
ar, annað vestur á Snæfells-
nesi, þar sem félagið á ann-
an bústað fyrir, en hinn aust-
ur í Þjórsárdal, þar sem fé-
lagið á einn góðan bústað
ásamt tveim hjólhýsum.
Stjórnin ákvað að selja hjól-
hýsin og reisa einn bústað til
í Þjórsárdal og nú á félagið
þrjá góða bústaði fyrir austan
og tvo fyrir vestan.
Dagana 24.—25. júní var
farin hin árlega sumarferð
bankans og í þetta sinn var
haldið til Vestmannaeyja.
Ferðin gekk í alla staði vel
enda sólskin og besta veður
þessa helgi.
Skemmtinefndin hefur hald-
ið uppi líflegu félagsstarfi og
hafa spilakvöld nefndarinnar
verið mjög vinsæl. Nokkrir
dansleikir hafa verið haldnir
á árinu og þeir sæmilega
sóttir.
Skáklið bankans hefur held-
ur ekki slegið slöku við. Skák-
menn brugðu sér til Akureyr-
ar, urðu nr. 2 í firmakeppni
fyrirtækja og höfnuðu í 1. sæti
á nýafstöðnu móti hjá Flug-
leiðum. Stærsta afrek skák-
sveitarinnar á árinu var tví-
mælalaust keppni í Maraþon-
hraðskákkeppni er 9 Búnað-
bankamenn auk Reykjavíkur-
meistara í skák 1979, Ásgeirs
Þ. Árnasonar, hófu keppni kl.
18.00 föstud. 6. apríl og tefldu
til kl. 19.00 laugardaginn 7.
apríl eða í 25 tíma alls. Tefld-
ar voru 142 umferðir og var
röð efstu manna þessi:
52 BANKABLAÐIÐ