Bankablaðið - 01.12.1979, Qupperneq 70
endaðan júní féll niður í ár
vegna óviðráðanlegra orsaka,
en ferðanefnd mun taka málið
föstum tökum þannig að þetta
kemur ekki fyrir aftur.
Árshátíð starfsmannafélags-
ins var haldin með miklum
glæsibrag 17. nóvember sl. í
Lækjarhvammi á Hótel Sögu
og var metaðsókn, þannig að
með þessu áframhaldi þurfum
við fljótlega á stærri sal að
halda. Allir skemmtu sér kon-
unglega, og eru strax farnir
að hlakka til næstu árshátíð-
ar.
Á síðasta ári var í fyrsta
sinn í sögu bankans haldið
jólaball fyrir börn starfsmanna
með tilheyrandi jólasveinum
og gjöfum. Tókst það svo vel
að þetta verður örugglega ár-
legur viðburður héðan í frá.
Starfsfólk bankans hefur
aðlagað sig að breyttum
vinnutíma og ber ekki á neinni
óánægju, enda allir af vilja
gerðir.
Við stefnum síðan að því
að efla félagslíf hjá okkur enn
betur, og viðhalda þeim góða
anda sem er í Samvinnubank-
anum.
Frá Starfsmannafélagi
Iðnaðarbankans
Aðalfundur Starfsmannafé-
lags Iðnaðarbankans var hald-
inn í byrjun mars s.l. Þá
gengu úr stjórn gjaldkeri og
ritari en formaður félagsins
Ægir E. Hafberg var endur-
kosinn, einnig var endurkos-
inn varaformaður félagsins,
Ragnar Önunarson, í starf
gjaldkera var kosinn Albert
Sveinsson og ritara Margrét
Hjaltested.
Síðasta starfsár hjá starfs-
mannafélaginu var í megin-
dráttum líkt og fyrri starfsár.
Reynt var að halda uppi yfir
veturinn hinni hefðbundnu
félagsstarfsemi eins og jóla-
balli, félagsvist, vor- og haust-
fagnaði og fleiri samkomum
eftir aðstæðum hverju sinni.
í sumar var tekin upp sú ný-
breytni að fara dagsferð með
börn og barnabörn starfs-
manna og heppnaðist sú ferð
vel. Hjá okkur starfar ekki sér-
stök skemmtinefnd, heldur til-
nefnir aðalstjórn félagsins
hóp hverju sinn til að sjá um
hverja einstaka skemmtun og
hafa útibú bankans hvert um
sig séð um einstakar skemmt-
anir. Þátttaka í félagsstarf-
semi hjá okkur er mjög mis-
jöfn eftir eðli skemmtunarinn-
ar, en yfirleitt er þátttaka all
góð. Ýmiss mál er varða hags-
muni starfsmanna komu upp
og ber þar sennilega hæst
breyttan opnunartíma bank-
anna. Ólíkt starfsfólki ríkis-
bankanna þá fögnuðu flestir
starfsmenn Iðnaðarbankans
þessari breytingu því starfs-
fólk flestra útibúa bankans
vann áður til klukkan 18.30,
eða lengur, þannig að þessi
breyting hafði það í för með
sér að þetta starfsfólk vinnur
nú á hinum hefðbundna dag-
vinnutíma, þ.e. frá 9:00 til
17:00.
Um upphaflega ákvarðana-
töku og „svokallað samráð“
varðandi þessa breytingu
harmaði stjórn starfsmanna-
félagsins að ekki skyldi vera
haft samráð við starfsfólk fyrr
en búið var raunverulega að
ákveða framkvæmd breyting-
arinnar. Af orlofshúsamálum
er það helst að frétta, að
starfsmannafélagið átti þrjá
bústaði að Húsafelli í Borgar-
firði sem starfsmenn byggðu
sjálfir á árunum 1976—78. í
haust keyptum við helming í
bústað á móti öðrum að III-
ugastöðum í Fnjóskadal og er
búið að selja einn af bústöð-
unum að Húsafelli til að fjár-
magna þau kaup. í sumar voru
húsin mjög vel nýtt og hefur
nýting þeirra aukist ár frá ári
og er það vel. Enn er margt
ógert við að snyrta umhverfi
húsanna og er hugmyndin að
gera það næsta sumar.
Þrátt fyrir verulega stækk-
un bankans, hefur starfsfólki
hans lítið fjölgað og stafar
það aðallega af aukinni tölvu-
notkun og innri skipulags-
breytingum.
Um þau mál sem framund-
an eru ber væntanlega kjara-
samninga hæst og þá helst
launaliðir samninganna. Tví-
mælalaust verða það erfiðir
samningar miðað við núver-
andi ástand í efnahagsmálum
þjóðarinnar, mjög mikilvægt
er nú fyrir bankafólk að sýna
sterka samstöðu og standa
þétt saman við bak forystu-
manna sinna og styrkja þá í
þeim erfiðu samningum sem
framundan eru. Takist það
ættum við að ná þeim þestu
samningum sem aðstæður í
þjóðfélaginu leyfa.
54 BANKABLAÐIÐ