Bankablaðið - 01.12.1979, Page 71
Frá Starfsmannaféiagi
Reiknistofu bankanna
Aðalfundur félagsins var
haldinn 15. febrúar 1979. í
stjórn voru kosnir: Guðjón
Steingrímsson formaður, Ní-
els Skjaldarson ritari, Þórar-
arinn Guðmundsson gjaldkeri
og til vara Guðmar Hauks-
son.
Á árinu hefur félagslíf
starfsmanna verið með marg-
víslegu móti.
Á vegum skemmtinefndar
hafa verið haldnar nokkrar
skemmtanir. Árshátíð félags-
ins var haldin að þessu sinni
í Skíðaskálanum í Hveradöl-
um og var sérstaklega vand-
að til hennar í tilefni af fimm
ára afmæli starfsmannafé-
lagsins.
Síðastliðið vor var haldið
námskeið í bridge á vegum
starfsmannafélagsins. Nám-
skeiðið stóð yfir fimm kvöld
og var þátttaka góð.
Skákáhugi er mikill meðal
starfsmanna. í október var
haldið hið árlega hraðskák-
mót S.R.B. þar sem keppt var
um titilinn hraðskákmeistari
S.R.B. Mjög góð þátttaka var
í mótinu. Öruggur sigurvegari
mótsins var Ómar Jónsson, en
hann sigraði í öllum sínum
skákum.
Skáksveit félagsins tók á
árinu í fyrsta skipti þátt í
firmakeppni Taflfél. Reykja-
víkur. Keppti sveitin í B-flokki
keppninnar og hafnaði í öðru
sæti og keppir því í A-flokki
næsta ár.
Starfsmenn hafa farið
nokkrum sinnum á árinu sam-
an í leikhús og haft mikla
ánægju af.
Síðla sumars fóru starfs-
menn í ferðalag. Haldið var að
Hítarvatni. Þátttaka í ferðinni
var dræm, en þar sem ferðin
þótti hin ævintýralegasta má
búast við mun betri þátttöku
næst.
íþróttanefndin gengst fyrir
vikulegum íþróttaæfingum í
íþróttahúsi Gerplu.
íþróttaflokkar félagsins hafa
tekið þátt í nokkrum firma-
keppnum á árinu og staðið
sig þokkalega.
Nýting á sumarbústað okk-
ar að Syðri-Reykjum í Bisk-
upstungum var ekki nógu góð
í sumar. Má þar eflaust um
kenna að mikið ólag var á
upphitun á bústaðnum. Það
stendur nú til bóta því þessa
dagana er verið að leggja síð-
ustu hönd á lagningu varan-
legrar hitaveitu í bústaðinn,
sem mun hafa það í för með
sér, að hægt verður að nýta
bústaðinn allt árið um kring.
Reiknistofumenn senda öll-
um bankamönnum baráttu-
kveðjur, og óska þeim gleði-
legra jóla og farsæls komandi
árs.
Frá Starfsmannafélagi
Framkvæmdastofnunar
ríkisins
Starfsmannafélag Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins var
stofnað 18. júní 1975. Höfðu
menn þá komist af án slíks fé-
lagsskapar allar götur frá því
að stofnuninni var komið á fót
í ársbyrjun 1972.
Það má því segja, að það
hafi verið uppsöfnuð þörf sem
rak menn til stofnunar starfs-
mannafélagsins, enda vorum
við utan allra verkalýðsfélaga
fram til þess tíma. Það varð
þó ekki af inngöngu okkar
í SÍB fyrr en 1979, enda hafði
þá staða þeirra samtaka
styrkst til muna við tilkomu
betri samningsréttar.
Á þeim 5 árum, sem félagið
hefur starfað, hefur það sýnt
fram á ágæti sitt í hverju því
máli sem það lætur sig varða.
Það hefur staðið vörð um rétt-
indi félaga og komið á leið-
réttingum þar sem þurft hefur.
Félagið hefur gert samning
við stofnunina um afnot af
sumarbústað, sem hún á við
Búðir á Snæfellsnesi. Hefur
það reynst farsæl lausn í or-
lofsmálum okkar.
Starfsmannafélagið hefur
gengist fyrir árshátíð nokkur
undanfarin ár í félagi við
starfsmenn Þjóðhagsstofnun-
ar. Nú í ár var hún haldin í
samkomuhúsi Rafveitunnar
við Elliðaár og var fjölsótt og
mjög vel heppnuð.
Skákáhugi er mikill meðal
starfsmanna og hefur félagið
keypt töfl og klukkur til að
fullnægja honum. Einnig hef-
ur félagið gengist fyrir einu
skákmóti, í maí s.l., og annað
er á döfinni.
Félagið beitir sér einnig fyr-
ir líkamlegum íþróttum. Við
höfum komið okkur upp borð-
tennisborði í kjallara hússins
og þar taka menn leik í matar-
og kaffitímum. Haldin hafa
verið tvö mót á ári í borðstof-
BANKABLAÐIÐ 55