Bankablaðið - 01.12.1979, Page 80

Bankablaðið - 01.12.1979, Page 80
17 ára starfsaldur. í gömlu samningunum var starfsaldurs- viðmiðun í þessum tilvikum 10, 15 og 20 ár. Að auki er þess krafist, að starfsmaður njóti óskerts orlofsframlags þó svo að laun skerðist vegna veikinda. Loks er þess krafist, að geti starfsmaður ekki sótt vinnu vegna veikinda á heimili sínu, teljisl það lögmæt forföll. Barnsburðarfrí Krafist er barnsburðarleyfis fyrir konu í 3 mánuði á fullum launum, eða í 6 mánuði á hálfum launum. í gömlu samningunum er kveðið á um barnsburðarleyfi fastráðinn- ar konu í 3 mánuði. Ennfremur er nú krafisl 20 daga leyfis á fullum laun- um fyrir karlmann, vegna barneignar eiginkonu eða sam- býliskonu. Samskonar réttur og hér er talinn að ofan fylgi, ef starfs- maður tekur kjörbarn. Afleysingar í grein 9.1.1. er þess krafist, að „starfsmaður sem lcysir af yfirmann eða annan starfsmann, sem er hærra laun- aður, skal taka laun þess sem hann leysir af þann tíma, sem fjarveran varir. Ekki er skylt að greiða starfsmanni sérstaklega fyrir afleysingar, nema fjarvera þess sem leysa á af nemi að minnsla kosti 5 dögum." í gömlu samningunum var kveðið á um að starfsmaður eigi rétt á latinum samkvæmt launajlokki þess sem leystur er af „gegni hann starfi yfirmanns lengur en 5 vikur sam- fleytt, eða 7 vikur á hverjum 12 mánuðum, eiula sé tekin um það ákvörðun hverju sinni." Fullorðinsfræðsla Krafist er, að fulltrúum SÍB í stjórn Bankamannaskól- ans verði fjölgað í 3. Námsleyfi, launalaust leyfi Krafist er réttar til tveggja mánaða leyfis á fullum laun- um eftir 5 ára starf, til framhaldsnáms er nýtist í starfi. Heimilt sé að fara fram á slíkt leyfi á sex ára fresti. Sé leyfi fyrst tekið eftir 10 ár, skuli það vera 3 mánuðir. Ferða- og dvalarkostnaður skuli greiddur af bankanutn. l>á skuli starfsmanni gefinn kostur á allt að 12 mánaða launalausu leyfi eftir 5 ára starf. Námsleyfi var ekki nefnt i gömlu samningunum, en þar var ákvæði um fi mánaða launalaust leyfi eftir 5 ára starf. Endurhæfing í kröfugerðinni er tekið upp ákvæði um eiulurhæfingu: „Starfsmaður skal ciga rétt á menntun og starfsþjálfun (endurhæfingu), ef hann einhverra hluta vcgna getur ekki stundað fyrri störf, sem krefjast sérstakrar menntun- ar eða starfsþjálfunár". Starfsmaður haldi fullum laun- um meðan menntunarstarf stendur yfir. Sömu reglur gildi, ef störf eru lögð niður. Reynslutími, fastráðning og uppsagnarfrestur Krafa er um, að reynslutími verði styttur úr 6 mánuð- um í 3 mánuði, og starfsmaður njóti eftir Jtriggja mánaða starf réttarstöðu fastráðins starfsmanns. Opnunartimi Krafa er um skýlaus ákvæði um opnunartímann. Óheim- ilt skuli að breyta opnunartíma, eða gera skipulagsbreyt- ingar á störfum bankamanna, nema með samkomulagi við viðkomandi starfsmannafélag og/eða SÍB. Viðkomandi starfsmannafélag hafi neitunarvald. gagnvart slíkum breyt- ingum. l>á er |>ess krafist, að samkomulag skuli gert við starfsmenn og/eða viðkomandi starfsmannafélag um hvers konar breytingar sem varða umhverfi og starfsaðstöðu á vinnustað. Skylt sé að verða við óskurn starfsmanna, starfs- mannafélaga eða trúnaðarráðs um viðræður um lagfær- ingar eða breytingar á umhverfi á vinnustað og starfsað- stöðu. í gömlu samningunum segir einungis um þessi atr- iði: „Hafa skal sarnráð við viðkomandi starfsmannafélag um meiri háttar breytingar á skipulagi, opnunartíma, um- hverfi og starfsaðstöðu." Starfsreglur Krafa er um, að samninganefndir komi sér saman um samræmdar starfsreglur fyrir starfsmenn bankanna og skuli J>ví lokið fyrir 1. júlí 1980. Ágreiningsefnum sé unnt að skjóta til gerðardóms. í gömlu samningunum segir að bankarnir geti hver fyrir sig sett nánari starfsreglur fyrir starfsmenn sína og skuli samræma þær. Leita skuli umsagnar stjórnar SÍB áður en þær taki gildi. Orlofsheimilasjóður, fræðslusjóður Krafa er um framlag banka til orlofsheimilasjóðs við- komandi starfsmannafélags, sem nemi að minnsta kosti 0,5% af föstum lauinim starfsmanna. Þá er krafa um 0,1% framlag banka í fræðslusjóð SÍB, sem verja skuli m.a. til fræðslustarfsemi trúnaðarmanna og annarrar fræðslu um kjaramál o.fl. Endurskoðun í kröfugerðinni er gert ráð fyrir að verði gerðar breyt- ingar á umsaminni vísitölutryggingu launa frá því sem samningarnir geri ráð fyrir, sé liægt að krefjast endur- skoðunar á kaupliðum samninganna. Náist ekki santkomu- lag innan 30 daga geti SÍB bcitt vinnustöðvun. í gömlu samningunum er ákvæði um úrlausn gerðardóms. 64 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.