Bankablaðið - 01.12.1979, Side 81
Lauslegar hugmyndir um
framtfðarskipan mennfunar-
mála bankamanna
Undanfarna mánuði hefur mikil umræða og
vinna verið í gangi varðandi menntunarmál
bankamanna innan skólanefndarinnar, innan
fræðslunefndar SIB og innan samninganefnd-
arinnar. Auk þess liafa almennir bankamenn
sýnt þessum málum mikinn áhuga og notað
ýmis tækifæri til að spyrjast fyrir um, livað í
vændum sé. Þess vegna notar skólinn þetta
tækifæri til að koma á framfæri við banka-
menn ýmsum upplýsingum um skólastarfið nú
(sjá grein á öðrum stað í blaðinu) og hugmynd-
um um framtíðarskipan þessara mála, sem
ræddar verða hér lauslega.
Það skal tekið fram strax að ýmis atriði eru
enn á algjöru umræðustigi, og ýmsar hugmynd-
ir eru hér aðeins settar fram sem rnínar eigin,
en ekki skólanefndarinnar, sem á eftir að ræða
þær nánar og taka ákvarðanir um þær.
Starfsþœttir skólans.
í stórum dráttum mætti skipta starfi skólans
í þrjá þætti eftir eðli þess og umfangi.
Fyrst ber að nefna það sem minnst er í snið-
um, Jr.e. frœðslu- og umrœðufundi, sem haldnir
hafa verið og haldnir verða um einstök mál-
efni, sem ofarlega eru á baugi í bankamálum
hverju sinni. Sem dæmi nm slíka fundi mætti
nefna fund um vaxtamálin, sem haldinn var í
vor, um nýskipan gjaldeyrismála, sem er nú á
döfinni, og verður væntanlega tekin á fundi,
þegar styttist í að hinar nýju reglur tagi gildi,
og loks breytingu á gjaldmiðlinum, þegar að
því kemur. Árlega væri hægt að hugsa sér að
haldnir yrðu þrír eða fjórir slíkir kvöldfundir.
Næst skal nefna sérnámskeið eða námstefn-
ur um afmörkuð tæknileg bankamálefni ætluð
Þorsteinn Magm'isson, sltólastjóri.
ákveðnum hópi rnanna, sem starfar við svipuð
störf. Hvert námskeið er um 20 stundir, og
gefur eitt sér engin réttindi, en hugsanlegt er
að ákveðinn fjöldi slíkra námskeiða hefði eitt-
hvert gildi, t.d. í framhaldsnáminu. Sérnám-
skeiðin eru annað hvort æluð almennum
bankamönnum, s. s. riturum, gjaldkerum,
tölvufólki, sparisjóðsfólki eða húsvörðum, eða
þau eru ætluð stjórnendum, deildarstjórum
eða útibústjórum og þá um stjómun eða slík
málefni.
Flest sérnámskeiðanna verða fastur liður á
kennsluskrá skólans í framtíðinni, og þau end-
urtekin ár eftir ár, og sum jafnvel tvítekin ár-
lega. Á rneðan verið er að skipuleggja náms-
efni, útbúa námsgögn og finna kennslukrafta
fyrir þessi námskeið eru þau nokkuð fyrirferð-
BANKABLAÐIÐ 65