Bankablaðið - 01.12.1979, Side 84

Bankablaðið - 01.12.1979, Side 84
Síðasta ndmsstigið mundi vera eins konar sérfræðinám í hátæknilegum bankafræðum, t. d. tölvufræðum, endurskoðun, ákveðnum þáttum lögfræði eða hagfræði eða í einhverj- um hliðum stjórnvísinda. Þetta yrði eins kon- ar framhald af háskólanáminu, og yrði styttra nám og helst í tengslum við erlenda banka- skóla eða háskóla. Þeir bankamenn, sem lokið liafa háskólastigi bankanámsins eða sem hafa verið ráðnir með háskólapróf inn í bankana, mundu jrá í samráði við Bankamannaskólann og banka sinn velja sér ákveðnar greinar eða námskeið hjá ákveðnum erlendum stofnunum, og vera sendir á kostnað skólans eða banka síns Jaangað í einn til jrrjá mánuði. Hér yrði varla um stóran hóp manna að ræða, kannski 4 til 6 á ári, en þeir yrðu sérfræðingar bankanna í ákveðnum greinum, og um leið ráðunautar skólans um ákveðnar kennslugreinar og sér- námskeið. Þetta síðasta stig yrði unnt að skipuleggja og setja í gang, þó hin stigin yrðu ekki búin að ganga í gegn, því að þegar er töluverður fjöldi háskólamanna starfandi við bankana, sennilega ekki færri en 50 manns.. Með því að senda 5 menn á ári í slíkt nám, tæki það tíu ár að fara eina urnferð. Niðurlag^. Það sem stefnt er að, er að koma upp námi og námskeiðum fyrir alla bankamenn, af hvaða uppruna, menntun eða reynslustigi sem Jaeir eru. Þegar fram líða stundir mundi verða til innan bankanna nokkuð stór hópur manna með breiða almenna viðskiptaþekkingu, og bankamir mundu geta valið í ábyrgðarstöður úr stöðugt vaxandi hópi hæfra manna. Banka- mannastéttin mundi verða nokkuð fjölbreyti- legri en nú er, hvað menntun snertir. Hingað til hefur fjölbreytileikinn aðallega verið fólg- inn í starfstíma bankamanna og starfsreynslu, en síður menntun þeirra og þekkingu á starfs- grein sinni. Áhugasamir og dugandi banka- menn mundu um leið fá möguleika á að vinna sig áfram með öðrurn hætti en starfstímanum einum saman. Það er von okkar, sem að málum þessum vinnum, að geta sem fyrst ákveðið einhvern slíkan grófan ramma um framtíðarskipan menntunarmála bankamanna, og geta svo fyllt út í rammann á næstu árum eftir því sem ár- gangarnir fara í gegnum neðri stigu námsins. Það skortir ekki áhuga okkar til þessa verks né heldur áhuga bankanna eða bankamanna, það fer helst að skorta aðstöðu fyrir skólann, liús- næði og starfslið. Með samstæðu átaki og góðri samvinnu verð- ur þessu brýna áhugamáli aðeins komið á. Þetta er stórvirki, sem verður ekki unnið á skömmum tíma nema með aðstoð og samvinnu stórs hóps manna í bönkunum öllum. Hingað til liefi ég ekki jmrft að ganga bónleiður til búðar, þegar ég hefi leitað til manna um að- stoð og samvinnu, og veit ég að sú verður raunin á áfram, og því horfi ég björtum aug- um fram á veginn. Reykjavík, 16. nóvember 1979 Þorsteinn Magnússon. 68 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.