Jazzblaðið - 01.09.1949, Síða 7
nr af hljómsveit Artie Shaw, og ennfremur
hvenær plöturnar voru leiknar inn. Fyrir
fram. þaklcir fyrir svörin og óskir um aö
hlaöiö haldi áfram að lcynna jazzinn af
sama skörungsskap og það liefur gert fram
«;)' þessn.
Einn af þeim eldri.
Svar. Grein um jazzhátíðaliöldin í París
er á öðrum stað í blaðinu, en ekki var hægt
að birta neitt af þeim fyrr, þar sem fuil-
nægjandi upplýsingar voru ekki fyrir hendi.
Á hinum skínandi plötum „Begin the be-
guin“ og „Indian love call“, eru það þeir Sid
Weiss og Cliff Leeman, sem leika. Sá fyrri
á bassa og' hinn trommur. Þær voru báðar
leiknar inn á miðju árinu 1938.
PLÖTUR. Ég þaklca fyrir margt gott í
síðasta hefti. Það sem mér þykir helzt vanta
í síðustu blöðin eru plötulistar, sem oft voru
í fyrstu blöðunum. Væri ekki lixgt að birta
í hverju blaði lista yfir nýjar plötur ásamt
nafni útgefanda? Þá vil ég biðja blaðið að
gefa mér upplýsingar um áslcriftargjald
„Metronome". Með beztu óskum og þalck-
læti.
Plötusafnari.
Svar. Sjálfsagt er að birta lista yfir ný-
útkomnar plötur, þó það virðist hálf til-
gangslaust, þar sem ekkert flytzt af þeim
inn í landið. Áskriftargjald „Metronome“
er þrír og hálfur dollar fyrir eitt ár og
sex dollarar fyrir tvö.
SVO ER NÚ ÞAÐ. Mig langar til að
gagnrýna frágang blaðsins, þ. e. a. s. tvö
síðustu blöð. Það er reyndar ekki sök út-
gefenda, heldur þeirra, sem annast prentun
blaðsins. Þessi blöð liafa verið klesst á
köflum vegna of mikils farfa (svertu).
Þetta atriði er auðvelt að ráða við og vona
ég að slíkt komi eklci fyrir aftur.
Kaflinn „Úr ýmsum áttum“ liefur versn-
að í frágangi við að taka upp það form að
setja spurningarnar úr feitu letri í staðinn
fyrir skáletur (cusiy) eins og það var áður
sett úr, í öllum eldri blöðunum.
Mér finnst Harmonikusíðan alls ekki eiga
heima í þessu blaði (jazzblaði). Hún er
noklcurs konar skóli fyrir „magaorgelspil-
ara“, en þeir eru ekki svo fáir, sem þyrftm
tilsagnar við og ætti það þess vegna að
vera fyrirgefanlegt, enda verður síðan
sennilega ekki langlíf í blaðinu. — Eins
finnst mér að danslagatextar mættu falla
úr og nótur koma í staðinn. Bréfið þarf ekki
að birtast frekar en vill, þar sem að þetta
ent meira leiðbeiningar til útgefenda
sjúlfra.
Alcurnesingur.
Svar. Við byrjum á að svara síðustu setn-
ingunni. Bréfið birtum við einmitt, þar sem
við höfum gert það að reglu að birta öll
bréf í blaðinu er varða efni þess og útlit.
Of mikill farfi virðist hafa verið á tveimur
síðustu blöðunum, satt er það. Okkur er
tjáð af prenturunum, að það sé pappírnum
að kenna, en hann er mjög harður og vont
að prenta vel á hann. Betri pappír er ófáan-
legur, sem stendur. Tvö síðustu blöð hafa
verið sett úr stærra letri en hin, en í þessu
letri hefur ekki verið til skáletur, svo að
spurningarnar í „Úr ýmsum áttum" hafa
þess vegna verið sett feitu letri. Nú er
blaðið sett með eldra letrinu, svo að úr
þessu hefur þegar verið bætt. — Okkar
fremstu jazzleikarar, þeir Ólafur Péturs-
son, Björn R. og Guðmundur Vilbergsson,
leika auk blásturshljóðfæranna enn á har-
moniku, meir en helmingur allra þeirra,
er leika á hljóðfæri á íslandi leika á har-
moniku, einn mesti jazzleikari, sem nú er
uppi, Art VanDamme, leikur á harmoniku.
Og hvort sem blaðið heitir jazzblað eða
ljósmæðrablað, þá ætti ekkert að standa í
vegi fyrir því að í því væri sérstök har-
monikusíða. Textar eru eitt það vinsælasta
í blaðinu og verða þeir birtir öðru hvoru
eins og undanfarið.
#a:zlUil 7