Jazzblaðið - 01.09.1949, Page 19
Jackie Cain söngkona og maður hennar
Roy Kral píanóleikari eru hætt í hljóm-
sveit Charlie Ventura. Þau voru aðalkraft-
arnir í hljómsveitinni, sem enn betur hefur
komið í 1 jós eftir að þau hættu, því liljóm-
sveitinni hefur hrakað mjög síðan. Þau eru
að hugsa um að stofna hljómsveit.
Stan Kenton,
hinn kunni hijórn
sveitarstjóri, sem
stjórnað hefur
vinsælustu hljóm
sveit Bandaríkj-
anna undanfarin
ár, segist nú
ætla að byrja
með hljómsveit
aftur. Hann lagði
niður hljómsveit sína um síðustu áramót
og sagðist þá ekki ætla að hugsa meir um
tónlist. •
Louis Armstrong fer með hljómsveit sína,
sem nú er ein tekjuhæsta smáhljómsveitin
í Bandaríkjunum, í árs hljómleikaferð til
Evrópu og Suður-Ameríku. Ferðin hefst í
september og með honum verða Jack
Teagarden trombón, Barney Bigard klarin-
et, Earl Hines píanó, Cozy Cole trommur,
Arvell Shaw bassi og söngkonan holdmikla
Velma Middleton.
•
Bunk Johnson trompetleikari, einn
elzti brautryðjandi jazzins, lézt þann 7.
júlí. Hann lék um aldamótin í hljóm-
sveit fyrsta jazzleikarans Buddy Bold-
en, en dró sig í lilé um 1930, unz hann
byrjaði aftur að leika fyrir nokkrum ár-
um, en hætti nú fyrir nokkrum mánuð-
um sökuin veikinda.
•
Artie Shaw klarinetleikari, sem nýlega
lét eftir sér hafa, að hann væri hættur að
leika jazz og ætlaði eingöngu að snúa sér
að klassískri músik, er nú kominn með 17
manna jazzhljómsveit.
INNLENT.
Baldur Iíristjánsson píanóleikari hefur
stjórnað hljómsveitinni að Hótel Norður-
landi á Akureyri í sumar. Með honum eru
tveir Reykvíkingar, Ólafur Pétursson með
tenór-saxafón og harmoniku og Guðmundur
Finnbjörnsson með fiðlu og altó. Hinir í
hljómsveitinni eru þeir Einar Jónsson
trommuleikari og Jón Sigurðsson trompet-
leikari. Báðir Akureyringar.
•
Iíarl Ivarlsson trommuleikari, Guðjón
Pálsson píanóleikari og Sigurgeir Björg-
vinsson harmonikuleikari hafa leikið á
Hótel Siglufirði í sumar. Þeir eru allir
Reykvíkingar.
•
Stefán Þorleifsson harmoniku- og tenór-
saxafónleikari, stjórnar hljómsveitinni, sem
byrjaði í Tjarnarcafe í sumar. Magnús
Pétursson píanó, Eyþór Þorláksson guitar,
Helgi Jónsson trompet og Guðmundur
Steingrímsson trommur, eru með Stefáni í
hljómsveitinni.
Lúðrasveit, sem að mestu var skipuð
mönnum úr Félagi íslenzkra hljóðfæraleik-
ara, hefur leikið tvisvar í sumar. 1 fyrra
sinnið á Arnarhólstúni í sambandi við úti-
hátíð Alþýðuflokksins og í síðara skiptið á
Austurvelli um verzlunarmannahelgina.
Hljómsveitin var í fyrra skiptið undir
stjórn Carls Billich og í síðara skiptið und-
ir stjórn Kristjáns Kristjánssonar. Verið
getur að sveitin verði formlega stofnuð í
í haust og haldi reglulegar æfingar í vetur.
•
íslenzkir danslagatextar heitir hefti, sem
nýlega hefur borizt blaðinu. Eins og nafnið
bendir til, eru í því íslenzkir danslagatext-
ar og hefur Haukur Morthens söngvari
valið þá. Marga þeirra hefur hann sungið
á skemmtunum Bláu Stjörnunnar. Heftið
hefur inni að halda 34 texta og kostar
fjórar krónur.
$a»lU& 19