Jazz - 01.10.1947, Blaðsíða 9
Eyþór Þorþclsson Gunnar Ormslev
R. Einarsson, Olafur G. Þórhallsson lék á
guitar og Þórhallur Guðjónsson og Eyþór
Þorkelsson léku á bassa.
Þarna komu fram m. a. 4 tiltölulega nýir
menn, þ. e. a. s. þeirra hefur ekki áður verið
getið hér í blaðinu, en þeir sýndu á þessari
„Session“ að þeir eiga sér mikla framtíð í
vændum í heimi jazzins.
Steinþór Steingrímsson píanóleikari er
fæddur 21.-3.~29 og hefur lært á píanó í 7
ár, en aðeins verið 1 ár atvinnumaður.
Hann byrjaði fyrst að leika í skólanum,
með Olafi G. Þórhallssyni og Arna Elvar,
síðar, er Gunnar Ormslev stofnaði G.O.quin-
tettinn réði hann sig þangað en nú leikur
hann með hinum nýja K. K.-sextett.
Steinþór, eða „Steini“ eins og hann er kall-
aður, hefur furðu mikla tækni, og hefur „til-
finninguna" fyrir því sem hann spilar.
Uuppáhalds píanóleikari hans er Teddy
Wilson, en Benny Goodman tríóið finnst
honum bezt af litlum einingum.
Olajur „Gauþur'" Þórhallsson er fæddur
11.-8.-30 og er 'því aðeins 17 ára að aldri, það
e rnærri ótrúlegt, ekki vegna þess að hann
sé ellilegur, heldur vegna tækni hans og góðs
smekks.
„Gaukur“ eins og hann er kallaður, hefir
leikið á guitar í 5 ár, en aðeins 1 ár opinber-
lega.
Það er ótrúlegt hve gott vald hann hefir á
hljóðfærinu eftir svo stuttan tíma, og hve
frumlegar sólóir hans eru.
Uppáhalds guitarleikari hans er Django
Reinhard hinn frægi franski guitarleikari, en
King Cole finnst honum bezt af litlum ein-
ingum.
Gaukur leikur með Ci. O. quintettinum,
Hawai quartett o. fl.
Gunnar Ormslev er fæddur í Kaupmanna-
höfn 22.-3.-28 og hefir leikið í tvö ár, eða
síðan hann kom hingað til lands.
Hann stofnaði G. O. quintettinn fyrir tæpu
ári síðan og lék um stund með Birni R.
Einarssyni í Breiðfirðingabúð.
Gunnar hefur afar mikla tækni og mikjar
Steinþór
Steingrímss.
Ólajur G.
Þórhallsson
JAZZ 9